Samkeppni geti ekki byggt á að taka eignir annarra

Strandveiðibátur kemur til hafnar á Arnarstapa.
Strandveiðibátur kemur til hafnar á Arnarstapa. mbl.is/Alfons

„Samkeppni þarf að vera sanngjörn og getur ekki byggst á því að menn taki eignir annarra og nýti í starfsemi sinni og brjóti lög í þeim tilgangi að skapa sér stöðu á markaði,“ segir í yfirlýsingu Reiknistofu fiskmarkaða (RSF).

Tilefnið er að NRS ehf. sem hyggðist keppa við RSF mun ekki áfrýja staðfestingu Héraðsdóm Reykjaness á lögbanni sem sett var á félagið þann 22. október á síðasta ári.

Hafði dómskvaddur matsmaður komist að því að hugbúnaðurinn sem fyrirtækið studdist við hafi verið að miklu leiti líkt kerfinu sem RSF hefur hannað og notað til að þjónusta uppboð fiskmarkaða.

Í kjölfar staðfestingu lögbannsins var send út yfirlýsing frá NRS þar sem sagði: „Við erum enn sannfærð um sakleysi okkar.“

Frestur til að áfrýja málinu til Landsréttar hefur hins vegar runnið út.

„Því er ljóst að dóminum verður ekki breytt heldur stendur hann óhaggaður og þar með lögbannið sem bannar NRS að halda uppboð í kerfi RSF sem stolið var og kópíerað og ætlað til notkunar í samkeppni við RSF,“ segir í yfirlýsingu RSF.

Vísað er til þess að dómskvaddur matsmaður sagði mikil líkindi milli kerfanna og að framendi og bakendi uppboðsklukkunnar hafi verið 98% eins. Aðeins nöfn félaganna tveggja var það sem ekki var eins í forrituninni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 456,31 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 532,04 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 237,18 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 177,69 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 177,61 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.4.24 Straumey EA 50 Línutrekt
Þorskur 1.663 kg
Ýsa 48 kg
Steinbítur 9 kg
Samtals 1.720 kg
23.4.24 Hlökk ST 66 Landbeitt lína
Þorskur 3.165 kg
Ýsa 1.316 kg
Steinbítur 180 kg
Karfi 29 kg
Skarkoli 3 kg
Samtals 4.693 kg
23.4.24 Fanney EA 48 Línutrekt
Þorskur 1.739 kg
Ýsa 40 kg
Karfi 37 kg
Samtals 1.816 kg
23.4.24 Hólmi ÞH 56 Grásleppunet
Grásleppa 4.450 kg
Samtals 4.450 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 456,31 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 532,04 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 237,18 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 177,69 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 177,61 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.4.24 Straumey EA 50 Línutrekt
Þorskur 1.663 kg
Ýsa 48 kg
Steinbítur 9 kg
Samtals 1.720 kg
23.4.24 Hlökk ST 66 Landbeitt lína
Þorskur 3.165 kg
Ýsa 1.316 kg
Steinbítur 180 kg
Karfi 29 kg
Skarkoli 3 kg
Samtals 4.693 kg
23.4.24 Fanney EA 48 Línutrekt
Þorskur 1.739 kg
Ýsa 40 kg
Karfi 37 kg
Samtals 1.816 kg
23.4.24 Hólmi ÞH 56 Grásleppunet
Grásleppa 4.450 kg
Samtals 4.450 kg

Skoða allar landanir »