„Það voru meiri væntingar“

Páll Snorrason, framkvæmdastjóri útgerðarfélagsins Eskju á Eskifirði, gerir ráð fyrir …
Páll Snorrason, framkvæmdastjóri útgerðarfélagsins Eskju á Eskifirði, gerir ráð fyrir að loðnuveiðar hefjist ekki fyrr en um miðjan febrúar vegna þess hve lítil vertíðin virðist ætla að verða. Ljósmynd/Eskja

„Ég er nú bara að melta þetta. Það voru meiri væntingar – byggðar á ungloðnumælingunum 2021, en eins og Hafró segir á eftir að fara í leiðangur aftur í janúar eða febrúar, segir Páll Snorrason, framkvæmdastjóri Eskju, um ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar um hámarksafla á komandi loðnuvertíð.

Hafrannsóknastofnun tilkynnti í morgun að ný ráðgjöf geri ráð fyrir 218.400 tonna hámarksafla, sem er 45% minna en gert var ráð fyrir eftir mælingar 2021 og 75% minni ráðgjöf en var fyrir síðustu vertíð.

Páll gerir ráð fyrir að um aðeins 130 þúsund tonna loðnukvóta verði úthlutað til íslenskra skipa vegna þeirra skuldbindinga sem Ísland hefur gengist undir í samningum við Noreg, Grænland og Færeyjar.

Til veiða í febrúar

„Þetta þýðir fyrir okkur að við munum bara veiða til manneldis,“ segir Páll. Hefði verið um stærri vertíð að ræða hefði töluvert af loðnu verið nýtt í framleiðslu á fiskimjöli og lýsi. „En vegna þess hve lítil vertíðin virðist ætla að verða er ekki tilefni til þess.“

Loðna, sem veidd er til manneldis, er veidd seint á vertíðinni, meðal annars til að ná hrognafullum fiski, enda hrognin verðmætasti hlutur fisksins. Vegna þessa gerir Páll ráð fyrir að veiðar hefjist ekki fyrr en um miðjan febrúar, jafnvel seinna, þar sem hrognatímabilið hefst í mars.

Á síðustu vertíð fóru sumir af stað í desember og því er ljóst að umsvif í veiðunuma minnka mikið milli ára.

Eskja gerir meðal annsr út uppsjávarskipið Aðalstein Jónsson SU-011.
Eskja gerir meðal annsr út uppsjávarskipið Aðalstein Jónsson SU-011. Ljósmynd/Eskja
mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 440,00 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 564,70 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 210,06 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,07 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,70 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,82 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,17 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Gammur Ii Grásleppunet
Grásleppa 1.034 kg
Þorskur 320 kg
Samtals 1.354 kg
24.4.24 Hólmi ÞH 56 Grásleppunet
Grásleppa 2.071 kg
Skarkoli 16 kg
Samtals 2.087 kg
24.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 927 kg
Keila 200 kg
Steinbítur 12 kg
Karfi 11 kg
Ýsa 7 kg
Samtals 1.157 kg
24.4.24 Simma ST 7 Grásleppunet
Þorskur 192 kg
Grásleppa 61 kg
Steinbítur 18 kg
Skarkoli 5 kg
Samtals 276 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 440,00 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 564,70 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 210,06 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,07 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,70 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,82 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,17 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Gammur Ii Grásleppunet
Grásleppa 1.034 kg
Þorskur 320 kg
Samtals 1.354 kg
24.4.24 Hólmi ÞH 56 Grásleppunet
Grásleppa 2.071 kg
Skarkoli 16 kg
Samtals 2.087 kg
24.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 927 kg
Keila 200 kg
Steinbítur 12 kg
Karfi 11 kg
Ýsa 7 kg
Samtals 1.157 kg
24.4.24 Simma ST 7 Grásleppunet
Þorskur 192 kg
Grásleppa 61 kg
Steinbítur 18 kg
Skarkoli 5 kg
Samtals 276 kg

Skoða allar landanir »