Yfirhalning á Akureyri reynist frönskum togara vel

Franski rogarinn Fisher Bank fékk mikla yfirhalningu hjá Slippnum Akureyri. …
Franski rogarinn Fisher Bank fékk mikla yfirhalningu hjá Slippnum Akureyri. Ný vinnslulína um borð er sögð reynast áhöfninni vel. Ljósmynd/Slippurinn Akureyri

„Veiðar og vinnsla ganga vel, gæði aflans eru góð og við fáum hátt verð fyrir aflann“ segir Bruno Leduc, framkvæmdarstjóri frönsku útgerðarinnar Euronor, í færslu á vef Slippsins Akureyri.

Togarinn Fisher Bank, sem Euronor gerir út, hefur nú verið á veiðum í rúma fjóra mánuði frá því að lokið var við yfirhalningu þess á Akureyri. Sett var upp ný vinnsla í skipinu og umfangsmiklu viðhaldi sinnt.

Seint á síðasta ári gerðu Slippurinn Akureyri og Euronor um hönnun, smíði og uppsetningu á vinnslum í tvö skip félagsins, Fisher Bank og Otter Bank, samhliða því að farið yrði í ýmis viðhaldsverkefni.

Skipin eru gerð út Frá Boulogne-Sur-Mer í Frakklandi en þau hétu áður Rokur og Lerkur og voru smíðuð 1999 og 2000 fyrir færeyska útgerð af Karstensens. Fram kemur i umfjöllun tímaritsins Hook & Net að skipinásamt uppfærslu þeirra hafi kostað um 14 milljónir evra, jafnvirði tæplega tveggja milljarða íslenskra króna.

Leystu vankanta vélslægingar

Tvær slægingarvélar eru um borð í sitt hvoru skipinu og er því mikill meirihluti aflans vélslægður. Í færslunni er vakin athygli á að slægingarvélarnar skera ekki á slagæðar og verður því blæðing þróttminni í hverjum fiski og blóðtæming erfiðari.

„Í skipið var sett Sæljón frá Slippnum Akureyri sem er stýrt blæðingar- og þvottaferli sem tryggir góða blóðtæmingu og afar góða aflameðferð. Vélslægði aflinn fer eftir blæðingar- og þvottaferli í gegnum stærðarflokkara frá Slippnum Akureyri sem er fyrsti flokkari sinnar tegundar. Þaðan er aflinn vigtaður sjálfvirkt í skammta fyrir hvert fiskiker í lest skipsins. Þegar skammtur í ker kemur í lest eru prentaðar upplýsingar sem fylgja hverju keri með upplýsingum um fisktegund, magn, dagsetningu og svo framvegis, líkt og þekkist við frystingu á Íslandsmiðum,“ segir í færslunni.

Þá segir að í skipið hafi einnig verið komið fyrir krapavél frá KAPP til kælingar í lest og í vinnslu.

„Áhöfnin er ánægð með hönnunina á vinnsludekkinu. Við erum að landa á markaði  í Danmörku og Frakklandi auk þess sem við höfum verið sigla til Færeyja. Við finnum að eftirspurnin eftir fiskinum frá Fisher Bank hefur aukist“ segir Bruno í færslunni á vef Slippsins.

ÞAð hefur verið í nógu að snúast hjá Slippnum Akureyri.
ÞAð hefur verið í nógu að snúast hjá Slippnum Akureyri.

Fleiri Erlend verkefni

Magnús Blöndal sviðsstjóri framleiðsludeildar Slippsins kveðst ánægður með verkefnið og samstarfið með Euronor á meðan á verkinu stóð. „Verkið var frábrugðið hinu hefðbundna verkefni Slippsins að því leyti að reglugerðir og vinnulag innan  ESB er frábrugðið því sem við eigum að venjast hér á heimamiðum.“

Hann segir jafnframt aukna eftirspurn eftir íslenskum lausnum í erlend fiskiskip. „Umsvifin hafa aukist og eru fleiri en eitt erlent verkefni í pípunum núna. Við finnum fyrir miklum áhuga á okkar lausnum í aflameðferð bæði hér heima og erlendis þar sem vörulína okkar hefur stækkað mikið á undaförnum árum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 501,21 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 371,38 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 197,72 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.4.24 Ingi Rúnar AK 35 Grásleppunet
Grásleppa 1.317 kg
Þorskur 148 kg
Samtals 1.465 kg
18.4.24 Guðrún AK 9 Grásleppunet
Grásleppa 638 kg
Þorskur 65 kg
Samtals 703 kg
18.4.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 3.294 kg
Skarkoli 178 kg
Grásleppa 152 kg
Ýsa 138 kg
Samtals 3.762 kg
18.4.24 Kaja ÞH 66 Grásleppunet
Grásleppa 1.471 kg
Þorskur 220 kg
Skarkoli 59 kg
Samtals 1.750 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 501,21 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 371,38 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 197,72 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.4.24 Ingi Rúnar AK 35 Grásleppunet
Grásleppa 1.317 kg
Þorskur 148 kg
Samtals 1.465 kg
18.4.24 Guðrún AK 9 Grásleppunet
Grásleppa 638 kg
Þorskur 65 kg
Samtals 703 kg
18.4.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 3.294 kg
Skarkoli 178 kg
Grásleppa 152 kg
Ýsa 138 kg
Samtals 3.762 kg
18.4.24 Kaja ÞH 66 Grásleppunet
Grásleppa 1.471 kg
Þorskur 220 kg
Skarkoli 59 kg
Samtals 1.750 kg

Skoða allar landanir »