Georg Lárusson sæmdur franskri orðu

Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, var í gær sæmdur frönsku …
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, var í gær sæmdur frönsku orðunni Ordre du Mérite Maritime. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, hefur verið sæmdur frönsku orðunni Ordre du Mérite Maritime af Guillaume Bazard, sendiherra Frakklands á Íslandi, að því er fram kemur í tilkynningu á vef Landhelgisgæslunnar.

Þar segir að Georg hafi tekið við orðunni fyrir hönd Landhelgisgæslunnar við formlega athöfn í sendiherrabústað frönsku utanríkisþjónustunnar í Reykjavík í gær.

Guillaume Bazard, sendiherra Frakklands á Íslandi, Georg Kr. Lárusson, forstjóri …
Guillaume Bazard, sendiherra Frakklands á Íslandi, Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, og Vincent Samson, varnarmálaerindreki Frakklands. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Fram kemur í tilkynningunni að Bazard hafi í ávarpi sínu vakið athygli á því að orðan hafi meðal annars verið veitt fyrir að stuðla að góðum samskiptum og samstarfi franska sjóhersins og Landhelgisgæslunnar auk þess fyrir að greiða götu franskra skipa hér við land á undanförnum árum.

Georg þakkaði fyrir þann heiður sem honum og Landhelgisgæslunni væri sýndur og benti á að samskipti Frakklands og Íslands tengdust sjósókn sterkum böndum sem næðu aldir aftur. Þá þakkaði hann öllum þeim sem unnið hafa ötullega að góðum samskiptum Landhelgisgæslunnar og franska sjóhersins. Einnig minntist Georg á að í tæp fjörutíu ár hefur Landhelgisgæslan notað franskar þyrlur til leitar- og björgunarstarfa hér á landi.

Auðunn Kristinsson, Guðríður Kristjánsdóttir, Svanhildur Sverrisdóttir, Steinvör Gísladóttir og Fríða …
Auðunn Kristinsson, Guðríður Kristjánsdóttir, Svanhildur Sverrisdóttir, Steinvör Gísladóttir og Fríða Aðalgeirsdóttir. Ljósmynd/Landhelgisgæslan
mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 456,31 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 532,04 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 237,18 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 177,69 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 177,61 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.4.24 Patrekur BA 64 Dragnót
Ufsi 1.297 kg
Skarkoli 1.198 kg
Karfi 226 kg
Ýsa 210 kg
Langa 136 kg
Þykkvalúra 79 kg
Þorskur 74 kg
Sandkoli 16 kg
Steinbítur 13 kg
Skötuselur 8 kg
Samtals 3.257 kg
23.4.24 Silfurborg SU 22 Dragnót
Steinbítur 3.980 kg
Skarkoli 1.183 kg
Þorskur 328 kg
Sandkoli 195 kg
Ýsa 82 kg
Samtals 5.768 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 456,31 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 532,04 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 237,18 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 177,69 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 177,61 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.4.24 Patrekur BA 64 Dragnót
Ufsi 1.297 kg
Skarkoli 1.198 kg
Karfi 226 kg
Ýsa 210 kg
Langa 136 kg
Þykkvalúra 79 kg
Þorskur 74 kg
Sandkoli 16 kg
Steinbítur 13 kg
Skötuselur 8 kg
Samtals 3.257 kg
23.4.24 Silfurborg SU 22 Dragnót
Steinbítur 3.980 kg
Skarkoli 1.183 kg
Þorskur 328 kg
Sandkoli 195 kg
Ýsa 82 kg
Samtals 5.768 kg

Skoða allar landanir »