Vír slitnaði og munaði litlu að fleiri slösuðust

Þegar vír slitnaði um borð í mars slasaðist einn illa …
Þegar vír slitnaði um borð í mars slasaðist einn illa og munaði litlu að þeir yrðu fleiri. Ljósmynd/Síldarvinnslan: Smári Geirsson

Skipverji sem stýrði svokallaðri kraftblökk slasaðist alvarlega um borð í Barða NK 5. mars síðastliðinn þegar vír slitnaði með þeim afleiðingum að hann fékk í sig vírinn eða blökkina. Haft var samband við Landhelgisgæsluna og hinn slasaði var sóttur með þyrlu og komið á sjúkrahús.

Litlu munaði að fleiri slösuðust en tveir skipverjar sem voru við vinnu við fremri snurpublökk voru nýfarnir frá blökkinni til þess að ná í svokallað brjóstband. Þegar vírinn slitnaði straukst hann við hjálm annars þeirra.

Þetta má lesa úr skýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa (RNSA).

Þar segir að Barði hafi verið á nótaveiðum í miklum sjó, en vírinn slitnaði þegar nótin var dregin. Stjórntækin um borð eru sögð „illa staðsett með tilliti til þess að slitni snurpuvír er sá sem stendur við stjórntækin í beinni skotlínu við vírinn og nálægt blökkinni slægist hún til.“

Skipverjinn sem slasaðist taldi í fyrstu að hann hefði fengið í sig vírinn en miðað við áverka taldi hann sig frekar hafa orðið fyrir blökkinni.

Mikil rannsókn

RNSA tók um það bil 15 faðma af vírnum beggja vegna við þann stað þar sem vírinn slitnaði og fóru með bútinn á rannsóknarstofu í Bretlandi þar sem gerðar voru á honum meðal annars slitþolsprófanir.

„Nokkrir samverkandi þættir hafa að öllum líkindum valdið slysinu. Meðan verið var að snurpa og hífa nótina var allmikil ölduhæð sem óhjákvæmilega jók álag á snurpuvírinn sem var í slæmu ástandi. Vírinn var mjög strekktur á milli blakka og því mikið álag á honum. Fremri snurpublökkin var of lítil og gegn ráðleggingum víraframleiðanda. Þá voru stjórntækin fyrir kraftblökkina illa staðsett og hafði það áhrif á alvarleika slyssins,“ segir í skýrslunni um orsök slyssins.

Þá gefur nefndin út sérstaka ábendingu til skipstjórnarmanna um „að kynna sér vel öryggisblöð og leiðbeiningar um notkun víra. Þvermál blakka á að vera sem næst 18 falt þvermál vírs.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,58 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 211,79 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,78 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 232,83 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Tryllir GK 600 Grásleppunet
Grásleppa 2.714 kg
Þorskur 637 kg
Steinbítur 25 kg
Rauðmagi 16 kg
Samtals 3.392 kg
24.4.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 16.635 kg
Ýsa 451 kg
Steinbítur 211 kg
Ufsi 34 kg
Hlýri 26 kg
Keila 14 kg
Karfi 4 kg
Langa 3 kg
Samtals 17.378 kg
24.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 1.843 kg
Steinbítur 344 kg
Keila 55 kg
Ýsa 54 kg
Ufsi 35 kg
Karfi 16 kg
Hlýri 4 kg
Langa 2 kg
Samtals 2.353 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,58 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 211,79 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,78 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 232,83 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Tryllir GK 600 Grásleppunet
Grásleppa 2.714 kg
Þorskur 637 kg
Steinbítur 25 kg
Rauðmagi 16 kg
Samtals 3.392 kg
24.4.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 16.635 kg
Ýsa 451 kg
Steinbítur 211 kg
Ufsi 34 kg
Hlýri 26 kg
Keila 14 kg
Karfi 4 kg
Langa 3 kg
Samtals 17.378 kg
24.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 1.843 kg
Steinbítur 344 kg
Keila 55 kg
Ýsa 54 kg
Ufsi 35 kg
Karfi 16 kg
Hlýri 4 kg
Langa 2 kg
Samtals 2.353 kg

Skoða allar landanir »