Leifturljós eykur ljósátu í Bongo-háfum

Mynd tekin með svifsjá af ljósátutegundinni agga. Beiting leifturljóss á …
Mynd tekin með svifsjá af ljósátutegundinni agga. Beiting leifturljóss á Bongo-háfum getur aukið afla sem bætir til muna sýnatöku. Ljósmynd/Hafrannsóknastofnun

Með einföldum leifturljósum sem komið er fyrir á svokölluðum Bongo-háfum fæst meiri ljósáta. Þetta er meðal niðurstaðna rannsóknar á sýnatöku ljósátu. Þá mun aukinn afli gefa réttari mynd af tegundasamsetningu og lengdardreifingu ljósátu en ef ljós hefðu ekki verið notuð.

Í færslu á vef Hafrannsóknastofnunar segir að vísindagrein vegna rannsóknarinnar hafi verið birt í vísindatímaritinu Journal of Plankton Research og eru höfundar þau Ástþór Gíslason, Hildur Pétursdóttir og Páll Reynisson.

Gögnunum sem liggja til grundvallar var safnað í rannsóknaleiðöngrum stofnunarinnar árið 2016. „Ekki er talið að ljósátan laðist að leifturljósinu heldur er líklegt að ljósátan nái síður að forðast háfana ef ljósin eru notuð. Þannig geta niðurstöðurnar nýst í tengslum við rannsóknir á ljósátu í framtíðinni,“ segir í færslunni.

Útskýrt er að Bongo-háfar séu „tiltölulega einföld átusöfnunartæki, og vegna þess hversu meðfærilegir þeir eru, hafa þeir verið nýttir af fjölmörgum rannsóknastofnunum, m.a. Hafrannsóknastofnun, til að ná í átusýni. Óbreyttir eru þeir hins vegar ekki mjög hentugir til að safna stærri svifdýrum, eins og ljósátu, sem virðist ná að forðast háfana.“

Ljós hefur gefið góða raun

Árið 2018 voru gerðar tilraunir með því að beita ljósbláu ljósi til að veiða ljósátu. Var hún lokkuð nálægt dælu sem dælir henni að mestu lifandi um borð í skip. 

Mark­mið leiðangr­anna var að prófa virkni dæl­unn­ar við ólík­ar aðstæður ásamt því að rann­saka teg­unda­sam­setn­ingu ljósátu og meðafla. Bet­ur gekk að veiða ljósát­una um haustið og var heild­arafli þá tölu­vert meiri, 13,1 tonn, en um sum­arið, 4,6 tonn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 501,21 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 371,38 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 197,72 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.4.24 Ingi Rúnar AK 35 Grásleppunet
Grásleppa 1.317 kg
Þorskur 148 kg
Samtals 1.465 kg
18.4.24 Guðrún AK 9 Grásleppunet
Grásleppa 638 kg
Þorskur 65 kg
Samtals 703 kg
18.4.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 3.294 kg
Skarkoli 178 kg
Grásleppa 152 kg
Ýsa 138 kg
Samtals 3.762 kg
18.4.24 Kaja ÞH 66 Grásleppunet
Grásleppa 1.471 kg
Þorskur 220 kg
Skarkoli 59 kg
Samtals 1.750 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 501,21 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 371,38 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 197,72 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.4.24 Ingi Rúnar AK 35 Grásleppunet
Grásleppa 1.317 kg
Þorskur 148 kg
Samtals 1.465 kg
18.4.24 Guðrún AK 9 Grásleppunet
Grásleppa 638 kg
Þorskur 65 kg
Samtals 703 kg
18.4.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 3.294 kg
Skarkoli 178 kg
Grásleppa 152 kg
Ýsa 138 kg
Samtals 3.762 kg
18.4.24 Kaja ÞH 66 Grásleppunet
Grásleppa 1.471 kg
Þorskur 220 kg
Skarkoli 59 kg
Samtals 1.750 kg

Skoða allar landanir »