288 milljarða metútflutningur sjávarafurða

Útflutningsverðmæti sjávarafurða voru 288 milljarðar fyrstu 10 mánuði ársins og …
Útflutningsverðmæti sjávarafurða voru 288 milljarðar fyrstu 10 mánuði ársins og hafa ekki verið meiri á fyrstu 10 mánuðum árs á þessari öld. mbl.is/Líney Sigurðardóttir

Alls voru fluttar út sjávarafurðir fyrri 288 milljarða króna á fyrstu 10 mánuðum ársins og hafa útflutningsverðmætin ekki verið meiri fyrstu 10 mánuðina á þessari öld. Um er að ræða 18% aukningu frá sama tímabili í fyrra, en aukningin er 23% í erlendri mynt. Bara í október nam útflutningsverðmæti sjávarafurða 30 milljörðum króna sem er 12% aukning frá sama mánuði í fyrra, en 17% aukning sé tekið tillit til gengisáhrifa.

Þetta kemur fram í greiningu Radarsins sem byggir á bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands um vöruskipti í október sem birtar voru í síðustu viku.

Mynd/Radarinn

„Aukninguna í október má að stærstum hluta rekja til fiskimjöls. Nam útflutningsverðmæti þess um 3,6 milljörðum króna í október, sem er 85% aukning á milli ára á föstu gengi. Eins var ágætis aukning á frystum flökum (22% á föstu gengi), heilfrystum fiski (26%) og á afurðaflokknum „aðrar sjávarafurðir“ (33%), en þar undir koma loðnuhrogn við sögu. Minni breyting var á útflutningsverðmæti annarra vinnsluflokka á milli ára, eins og sést á myndinni hér fyrir neðan,“ segir í greiningunni

Mynd/Radarinn

Aðeins samdráttur í óunnum fiski

Útflutningsverðmæti fiskimjöls á fyrstu 10 mánuðum ársins nam 34 milljörðum króna, sem er þrefalt meira en á sama tímabili á síðasta ári. Þá er lýsi komið í 25 milljarða sem er 160% meira en fyrstu 10 mánuði í fyrra. Þá hefur útflutningsverðmæti frystra flaka aukist um 21% í 69 milljarða króna fyrstu 10 mánuði ársins.

Hvergi er samdráttur nema í útflutningi á heilfrystum fiski.

„Stór loðnukvóti á síðasta fiskveiðiári er ein af helstu ástæðum fyrir þessari myndarlegu aukningu í útflutningsverðmætum sjávarafurða í ár. En fleira kemur þó til, eins og sjá má á myndinni sem kemur fyrir hér neðst. Þar má sjá hvernig samspil afurðaverðs í erlendri mynt, gengi krónunnar og svo magns hefur áhrif á útflutningsverðmæti sjávarafurða í krónum talið. Eins má sjá hvernig þessi þróun er fyrir uppsjávarafurðir og svo botn- og flatfiskafurðir. Þetta er byggt á ársfjórðungstölum Hagstofunnar og því aðeins hægt að sjá þróunina á fyrstu 9 mánuðum ársins. Fyrri ár eru heilsárstölur,“ segir í greiningu Radarsins.

Þar er vakin athygli á að magn er megin skýring þess að útflutningsverðmæti uppsjávarafurða hefur aukist milli ára á fyrstu 9 mánuðum ársins borið saman við sama tímabil í fyrra.

Mynd/Radarinn

„Hækkun afurðaverðs kemur einnig við sögu, en styrking á gengi krónunnar vegur aðeins á móti. Sé litið á botn- og flatfiskafurðir má sjá að aukninguna í útflutningsverðmætum má alfarið rekja til hækkunar á afurðaverði, enda hefur útflutt magn dregist saman samhliða samdrætti í afla. Þannig að þegar öllu er á botninn hvolft hefur afurðaverð átt stærstan þátt í þeirri aukningu sem orðið hefur á útflutningsverðmætum sjávarafurða í ár. Það blasir við þegar litið er á þróunina á útflutningsverðmætum sjávarafurða alls.“

Ekki aðeins almennum verðhækkunum að þakka

Þrátt fyrir að mikil verðhækkun hafi átt sér stað á erlendu mörkuðum má ekki ætla að það sé eina skýring aukinna útflutningsverðmæta, samkvæmt Radarnum. „Hér skiptir sölu- og markaðsstarfs sjávarútvegsfyrirtækjanna ekki síður máli.“

Hátt verð er sagt geta „vegið upp þann samdrátt sem varð í úthlutuðu aflamarki ýmissa mikilvægra botnfisktegunda á yfirstandandi fiskveiðiári, eins og í þorski. Ekki veitir af því að afla meiri útflutningstekna þegar vöruinnflutningur er í örum vexti líkt og nú með tilheyrandi halla á vöruskiptum við útlönd.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 27.3.24 401,29 kr/kg
Þorskur, slægður 27.3.24 443,15 kr/kg
Ýsa, óslægð 27.3.24 182,08 kr/kg
Ýsa, slægð 27.3.24 136,03 kr/kg
Ufsi, óslægður 27.3.24 107,02 kr/kg
Ufsi, slægður 27.3.24 189,28 kr/kg
Gullkarfi 27.3.24 143,21 kr/kg
Litli karfi 27.3.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg
Blálanga, slægð 27.3.24 120,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

28.3.24 Blíðfari ÓF 70 Grásleppunet
Grásleppa 2.961 kg
Þorskur 217 kg
Samtals 3.178 kg
28.3.24 Helga Sæm ÞH 70 Grásleppunet
Grásleppa 4.013 kg
Samtals 4.013 kg
28.3.24 Hafdís Helga EA 51 Grásleppunet
Grásleppa 898 kg
Þorskur 92 kg
Skarkoli 13 kg
Samtals 1.003 kg
28.3.24 Fengur EA 207 Grásleppunet
Grásleppa 1.217 kg
Þorskur 104 kg
Skarkoli 14 kg
Rauðmagi 4 kg
Samtals 1.339 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 27.3.24 401,29 kr/kg
Þorskur, slægður 27.3.24 443,15 kr/kg
Ýsa, óslægð 27.3.24 182,08 kr/kg
Ýsa, slægð 27.3.24 136,03 kr/kg
Ufsi, óslægður 27.3.24 107,02 kr/kg
Ufsi, slægður 27.3.24 189,28 kr/kg
Gullkarfi 27.3.24 143,21 kr/kg
Litli karfi 27.3.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg
Blálanga, slægð 27.3.24 120,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

28.3.24 Blíðfari ÓF 70 Grásleppunet
Grásleppa 2.961 kg
Þorskur 217 kg
Samtals 3.178 kg
28.3.24 Helga Sæm ÞH 70 Grásleppunet
Grásleppa 4.013 kg
Samtals 4.013 kg
28.3.24 Hafdís Helga EA 51 Grásleppunet
Grásleppa 898 kg
Þorskur 92 kg
Skarkoli 13 kg
Samtals 1.003 kg
28.3.24 Fengur EA 207 Grásleppunet
Grásleppa 1.217 kg
Þorskur 104 kg
Skarkoli 14 kg
Rauðmagi 4 kg
Samtals 1.339 kg

Skoða allar landanir »