Arnarlax sektað um 120 milljónir

Höfuðstöðvar og aðalstarfsstöð Arnarlax á Bíldudal.
Höfuðstöðvar og aðalstarfsstöð Arnarlax á Bíldudal. Ljósmynd/Arnarlax

Matvælastofnun hefur lagt 120 milljóna kr. stjórnvaldssekt á Arnarlax ehf. fyrir að hafa brotið gegn skyldu um að tilkynna um strok á fiski og beita sér fyrir veiðum á strokfiski.

Við slátrun úr sjókví 11 við Haganes í Arnarfirði í október síðastliðnum varð ljóst að fyrirtækið gat ekki gert grein fyrir afdrifum 81.564 laxa hið minnsta að sögn MAST

Alls hafði 132.976 löxum verið komið fyrir í kvínni í október 2020 og júlí 2021. Skráð afföll voru 33.097 fiskar en í október 2022, þegar slátrun var lokið úr kvínni, reyndist fjöldinn sem kom upp úr kvínni hins vegar vera aðeins 18.315 laxar, segir í tilkynningu. 

Veruleg frávik í fóðurgjöf

„Kví 11 hefur áður verið til umfjöllunar en Arnarlax tilkynnti í ágústlok 2021 að gat hefði fundist á umræddri sjókví. Þá voru viðbrögð fyrirtækisins í samræmi við kröfur sem gerðar eru þegar slíkir atburðir eiga sér stað.

Þegar tölur úr slátruninni í október sl. lágu fyrir og ljóst var að ekki var hægt að gera grein fyrir afdrifum rúmlega 80 þúsund laxa, hóf MAST strax rannsókn og krafði Arnarlax meðal annars um skýringar á misræmi í fóðurgjöf m.v. uppgefinn fjölda fiska í kvínni. Kom þá í ljós að veruleg frávik höfðu orðið í fóðurgjöf í kví 11 frá því í júní 2021, eða tveimur mánuðum áður en tilkynnt var um gat á kvínni síðastliðið sumar, sem hefðu átt að vekja sterkar grunsemdir fyrirtækisins um að eitthvað alvarlegt væri á seyði,“ segir MAST.

Þá kemur fram að samkvæmt 1. gr. laga um fiskeldi séu markmið laganna meðal annars þau að stuðla að ábyrgu fiskeldi og tryggja verndun villtra nytjastofna og telur Matvælastofnun að um alvarlegt brot sé að ræða, bæði út frá umfangi og hættu fyrir villta nytjastofna og lífríki, sem og að um er ræða brot sem hefði verið hægt að koma í veg fyrir með betri stjórn og innra eftirliti fyrirtækisins.

„Matvælastofnun telur aðgæsluleysi Arnarlax hafi verið vítavert og afleiðingar þess mjög alvarlegar.

Samkvæmt sömu lögum getur Matvælastofnun lagt stjórnvaldssekt á þá aðila sem brjóta gegn skyldu um að tilkynna um strok á fiski og beita sér fyrir veiðum á strokfiski, hvort sem umrædd brot megi rekja til ásetnings eða gáleysis. Jafnframt segir í lögunum að við ákvörðun sektar skuli m.a. tekið tillit til alvarleika brots, hvað það hafi staðið lengi og þeirra hagsmuna sem eru í húfi.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 448,91 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,16 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Dagrún HU 121 Grásleppunet
Grásleppa 3.993 kg
Þorskur 387 kg
Skarkoli 22 kg
Ýsa 12 kg
Steinbítur 4 kg
Rauðmagi 2 kg
Samtals 4.420 kg
19.4.24 Elva Björg SI 84 Grásleppunet
Grásleppa 2.531 kg
Þorskur 102 kg
Skarkoli 74 kg
Samtals 2.707 kg
19.4.24 Haförn ÞH 26 Dragnót
Steinbítur 3.853 kg
Skarkoli 2.241 kg
Þorskur 682 kg
Sandkoli 76 kg
Þykkvalúra 39 kg
Samtals 6.891 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 448,91 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,16 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Dagrún HU 121 Grásleppunet
Grásleppa 3.993 kg
Þorskur 387 kg
Skarkoli 22 kg
Ýsa 12 kg
Steinbítur 4 kg
Rauðmagi 2 kg
Samtals 4.420 kg
19.4.24 Elva Björg SI 84 Grásleppunet
Grásleppa 2.531 kg
Þorskur 102 kg
Skarkoli 74 kg
Samtals 2.707 kg
19.4.24 Haförn ÞH 26 Dragnót
Steinbítur 3.853 kg
Skarkoli 2.241 kg
Þorskur 682 kg
Sandkoli 76 kg
Þykkvalúra 39 kg
Samtals 6.891 kg

Skoða allar landanir »