Strandaði á leið til Neskaupstaðar með síld

Vilhelm Þorsteinsson EA strandaði á leið sinni til hafnar í …
Vilhelm Þorsteinsson EA strandaði á leið sinni til hafnar í Neskaupstað. Ljósmynd/Síldarvinnslan/Smári Geirsson

Vilhelm Þorsteinsson EA var á leið til hafnar með 900 tonn af síld af miðunum austur af landinu þegar skipið strandaði skammt frá höfninni í Neskaupstað um klukkan eitt í dag. Var björgunarskipið Hafbjörg kallað út og kom einnig uppsjávarskipið Bari NK til aðstoðar.

Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni var gott veður var á svæðinu og því gekk vel að aðstoða skipið og koma því í tog og dróg BArði Vilhelm af strandstað. „Staðan var alltaf metin örugg. Þetta gekk hratt og vel fyrir sig,“ segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslu Íslands.

Nú er verið að koma Vilhelmi til hafnar en ekki liggja fyrir upplýsingar um skemmdir á skipinu. Skipið er meðal nýjustu skipum landsins og er flaggskip Samherja.

Gekk vel fram að þessu

Fram að þessu atviki gekk túrinn vel ef marka má orð Guðmundar Þ. Jónssonar, skipstjóra á Vilhelm Þorsteinssyni, í færslu á vef Síldarvinnslunnar sem birt var fyrr í dag.

„Við fengum aflann í einum fimm holum á Rauða torginu. Það er ekki mikið af síld að sjá á þessum slóðum en hún er þarna í smátorfum. Athyglisvert er að töluvert er af íslenskri sumargotssíld í aflanum og það er ánægjulegt að sjá að sú síld virðist vera að rétta verulega úr kútnum austur af landinu. Við vorum eina íslenska skipið á þessum slóðum en þarna voru hins vegar Færeyingar,“ sagði hann í færslunni.

Túrinn markar lok síldarveiða skipsisn en það er búið að klára kvótann. „Ég gæti trúað að haldið verði til kolmunnaveiða eftir áramótin og svo er það auðvitað loðnan.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 496,08 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 362,62 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 196,14 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.4.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 8.181 kg
Þorskur 404 kg
Skarkoli 88 kg
Ýsa 78 kg
Samtals 8.751 kg
18.4.24 Eyrarröst ÍS 201 Landbeitt lína
Steinbítur 3.179 kg
Þorskur 460 kg
Skarkoli 160 kg
Ýsa 94 kg
Samtals 3.893 kg
18.4.24 Sæli BA 333 Lína
Þorskur 1.581 kg
Ýsa 18 kg
Skarkoli 17 kg
Samtals 1.616 kg
18.4.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Steinbítur 923 kg
Ýsa 369 kg
Þorskur 199 kg
Hlýri 78 kg
Skarkoli 56 kg
Langa 25 kg
Ufsi 18 kg
Samtals 1.668 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 496,08 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 362,62 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 196,14 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.4.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 8.181 kg
Þorskur 404 kg
Skarkoli 88 kg
Ýsa 78 kg
Samtals 8.751 kg
18.4.24 Eyrarröst ÍS 201 Landbeitt lína
Steinbítur 3.179 kg
Þorskur 460 kg
Skarkoli 160 kg
Ýsa 94 kg
Samtals 3.893 kg
18.4.24 Sæli BA 333 Lína
Þorskur 1.581 kg
Ýsa 18 kg
Skarkoli 17 kg
Samtals 1.616 kg
18.4.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Steinbítur 923 kg
Ýsa 369 kg
Þorskur 199 kg
Hlýri 78 kg
Skarkoli 56 kg
Langa 25 kg
Ufsi 18 kg
Samtals 1.668 kg

Skoða allar landanir »