Verðmæti afla við fyrstu sölu var 150 milljarðar króna á fyrstu þremur ársfjórðungum þessa árs, samkvæmt bráðabirgðatölum.
Þetta er 26% aukning frá sama tímabili á síðasta ári en þá var aflaverðmæti 119 milljarðar króna, að því er Hagstofa Íslands greinir frá.
Verðmæti botnfisktegunda var 102 milljarðar króna sem er 18% aukning frá fyrra ári. Verðmæti uppsjávarafla nam 40 milljörðum króna sem er 69% aukning frá fyrra ári.
Magn landaðs afla á fyrstu þremur ársfjórðungum þessa árs var tæplega 1,2 milljónir tonna en var 813 þúsund tonn árið áður. Þessi magnaukning á milli ára er að mestu tilkomin vegna 375 þúsund tonna aukningar á loðnuveiði.