Kolmunnaveiðarnar eru komnar á fullt og kom Börkur NK til hafnar í Neskaupstað í gærkvöldi með 2.100 tonn og Beitir fylgdi síðan í morgun og var skipið með álíka mikinn afla. Skipin hafa verið á miðunum suðaustur af Færeyjum við miðlínu á milli Færeyja og Hjaltlandseyja.
„Þarna var fínasta fiskirí og gott veður nánast allan tímann. Við og Beitir máttum taka um 2.100 tonn hvort skip, en það var það sem eftir var af kvótanum. Við fengum aflann í fimm holum og það voru 400 – 500 tonn í hverju holi. Þarna var töluvert að sjá en við vorum bara tveir bátar þarna og alltaf á sama blettinum,“ segir Hálfdan Hálfdanarson, skipstjóri á Berki, í færslu á vef Síldarvinnslunnar.
Þá segir Sturla Þórðarson, skipstjóri á Beiti, að vel hafi gengið að ná aflanum. „Þetta voru fimm hol hjá okkur og þarna fékkst ágætis fiskur.“