„Það er ekki undan neinu að kvarta og veðrið var meira að segja með alskásta móti,“ segir Þórhallur Jónsson, skipstjóri á Gullveri NS, í færslu á vef Síldarvinnslunnar um síðasta túr.
Skipið kom til hafnar á Seyðisfirði í gærmorgun með rúm 100 tonn eftir fjögurra daga veiði og kveðst skipstjórinn ánægður með fiskiríið. „Við veiddum í Berufjarðarálnum og á Hvalbaksgrunni og aflinn var blandaður en mest þorskur og ýsa,“ segir Þórhallur.
Megnið af afla Gullvers fór til vinnslu í frystihúsinu á Seyðisfirði.