Kristinn H. Gunnarsson fyrrverandi alþingismaður segir í pistli á Bæjarins besta að staðhæfingar framkvæmdastjóra Verndarsjóðs villtra laxastofna um ástand hafsbotnsins í Dýrafirði reynist einfaldlega ósannar þegar opinber gögn séu skoðuð.
Elvar Örn Friðriksson, framkvæmdastjóri Verndarsjóðs villtra laxastofna, tók sterkt til orða í viðtali á Hringbraut á dögunum þegar hann ræddi um laxeldi í Dýrafirði á Vestfjörðum. Hafsbotninn í Dýrafirði undir laxeldiskvíunum væri „ein stór bakteríumotta, þar sem ekkert annað þrífst, steindauður botn, úrgangur í fiskunum og fóðurleyfar.“
Kristinn segir „óvanalegt að verða vitni að jafn viðamiklu fráviki frá staðreyndum eins og raunin varð í umræddu Hringbrautarviðtali sem ritstjóri Fréttablaðsins stýrði.“
Kristinn bendir í pistlinum á að ríkisstofnanir hafi eftirlit með þessum iðnaði og þykir ekki mikið koma til þeirra mynda sem Elvar vísaði til í sínum málflutningi.
„Framkvæmdastjórinn vísaði máli sínu til stuðnings aðeins til mynda sem kajakræðari segist hafa tekið einhvers staðar á Dýrafirði. Ekki hefur verið gefið upp hvar og hvenær þær myndir voru teknar.“
Kristinn kýs heldur að skoða hvað Umhverfisstofnun segir um ástand hafsbotnsins undir laxeldiskvíum í Dýrafirði.
„Svo vill til að þessar fullyrðingar framkvæmdastjórans er hægt að staðreyna. Það er lögum samkvæmt fylgst með lífríkinu, ástandi þess fyrir upphaf eldis og breytingum á því meðan á eldi stendur. Á vef Umhverfisstofnunar eru birtar upplýsingar um kröfur og eftirlit ,svo og eftirlitsskýrslur og skýrslur um mælingar og vöktun. Starfsleyfið sjálft er þar einnig aðgengilegt og getur hver sem er kynnt sér það og önnur gögn,“ skrifar Kristinn og hjá honum kemur fram að svæðin þrjú í firðinum hafi öll fengið hæstu einkunn.
„Það er ólíku saman að jafna opinberu eftirliti þar sem skýrslur og önnur gögn eru opinber og öllum aðgengileg og svo leyndardómsfullum myndbrotum,“ skrifar Kristinn einnig.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 4.10.24 | 453,42 kr/kg |
Þorskur, slægður | 4.10.24 | 461,60 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 4.10.24 | 232,47 kr/kg |
Ýsa, slægð | 4.10.24 | 188,59 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 4.10.24 | 215,68 kr/kg |
Ufsi, slægður | 4.10.24 | 238,63 kr/kg |
Djúpkarfi | 3.10.24 | 196,31 kr/kg |
Gullkarfi | 4.10.24 | 185,92 kr/kg |
Litli karfi | 25.9.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 4.10.24 | 19,00 kr/kg |
4.10.24 Óli Á Stað GK 99 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 482 kg |
Steinbítur | 102 kg |
Ýsa | 66 kg |
Hlýri | 26 kg |
Keila | 22 kg |
Langa | 21 kg |
Karfi | 4 kg |
Samtals | 723 kg |
4.10.24 Auður Vésteins SU 88 Lína | |
---|---|
Þorskur | 446 kg |
Keila | 200 kg |
Karfi | 126 kg |
Hlýri | 101 kg |
Ýsa | 53 kg |
Steinbítur | 2 kg |
Samtals | 928 kg |
4.10.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína | |
---|---|
Þorskur | 5.778 kg |
Ýsa | 5.094 kg |
Steinbítur | 434 kg |
Langa | 159 kg |
Skarkoli | 27 kg |
Samtals | 11.492 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 4.10.24 | 453,42 kr/kg |
Þorskur, slægður | 4.10.24 | 461,60 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 4.10.24 | 232,47 kr/kg |
Ýsa, slægð | 4.10.24 | 188,59 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 4.10.24 | 215,68 kr/kg |
Ufsi, slægður | 4.10.24 | 238,63 kr/kg |
Djúpkarfi | 3.10.24 | 196,31 kr/kg |
Gullkarfi | 4.10.24 | 185,92 kr/kg |
Litli karfi | 25.9.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 4.10.24 | 19,00 kr/kg |
4.10.24 Óli Á Stað GK 99 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 482 kg |
Steinbítur | 102 kg |
Ýsa | 66 kg |
Hlýri | 26 kg |
Keila | 22 kg |
Langa | 21 kg |
Karfi | 4 kg |
Samtals | 723 kg |
4.10.24 Auður Vésteins SU 88 Lína | |
---|---|
Þorskur | 446 kg |
Keila | 200 kg |
Karfi | 126 kg |
Hlýri | 101 kg |
Ýsa | 53 kg |
Steinbítur | 2 kg |
Samtals | 928 kg |
4.10.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína | |
---|---|
Þorskur | 5.778 kg |
Ýsa | 5.094 kg |
Steinbítur | 434 kg |
Langa | 159 kg |
Skarkoli | 27 kg |
Samtals | 11.492 kg |