Á fimm árum hefur velta Micro ehf. þrefaldast í krafti góðrar þjónustu og vandaðra fiskvinnslutækja. Framkvæmdastjórinn óttast að innlendir framleiðendur búnaðar muni eiga fullt í fangi með að fullnægja innlendri eftirspurn á komandi árum enda gera spár ráð fyrir hraðri uppbyggingu í fiskeldi.
Íslenska hátæknifyrirtækið Micro ehf. hefur smám saman verið að ryðja sér til rúms á markaðinum fyrir fiskvinnslubúnað. Félagið var stofnað árið 1996 og framan af snérist starfsemin nánast einvörðungu um viðbætur og viðhald á búnaði um borð í skipum. „En svo bættust við fleiri verkefni og vorum við fljótlega farin að taka að okkur smíði fyrir stærri fyrirtækin í þessum geira og höfum við í gegnum tíðina t.d. verið undirverktakar fyrir Marel, Skagann og Völku,“ útskýrir Gunnar Óli Sölvason framkvæmdastjóri Micro.
„Undanfarin fimm ár höfum við síðan tekið að marka þá stefnu vísvitandi að smíða tæki sem við hönnum sjálf, með háu tæknistigi og öllum þeim stýringum og búnaði sem kaupandinn þarf til hámarksafkasta.“
Meðal þess sem Micro býður upp á eru vönduð færibönd, kælikör, flokkarar og vogir. Segir Gunnar að félagið njóti góðs af því að hafa smíðað sambærilegan búnað fyrir aðra um árabil, en Micro býr einnig að því að eiga fjölda starfsmanna sem hafa bakgrunn í hönnun fiskvinnsulutækja. Sjálfur vann Gunnar við vöruþróun hjá einu af stóru fyrirtækjunum á markaðinum um fimm ára skeið. „Þetta getur verið mjög flókinn búnaður en okkar fólk er reynslumikið og fært á þessu sviði.“
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 19.4.24 | 448,49 kr/kg |
Þorskur, slægður | 19.4.24 | 562,68 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 19.4.24 | 314,23 kr/kg |
Ýsa, slægð | 19.4.24 | 191,66 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 19.4.24 | 152,79 kr/kg |
Ufsi, slægður | 19.4.24 | 271,61 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 19.4.24 | 133,77 kr/kg |
Litli karfi | 19.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
19.4.24 Oddverji SI 76 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.417 kg |
Þorskur | 176 kg |
Skarkoli | 36 kg |
Rauðmagi | 3 kg |
Ufsi | 2 kg |
Samtals | 1.634 kg |
19.4.24 Kambur HU 24 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 3.044 kg |
Þorskur | 690 kg |
Steinbítur | 21 kg |
Ufsi | 19 kg |
Skarkoli | 17 kg |
Rauðmagi | 12 kg |
Ýsa | 8 kg |
Þykkvalúra | 3 kg |
Sandkoli | 2 kg |
Samtals | 3.816 kg |
19.4.24 Báran SI 86 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.080 kg |
Þorskur | 101 kg |
Skarkoli | 38 kg |
Steinbítur | 17 kg |
Samtals | 1.236 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 19.4.24 | 448,49 kr/kg |
Þorskur, slægður | 19.4.24 | 562,68 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 19.4.24 | 314,23 kr/kg |
Ýsa, slægð | 19.4.24 | 191,66 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 19.4.24 | 152,79 kr/kg |
Ufsi, slægður | 19.4.24 | 271,61 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 19.4.24 | 133,77 kr/kg |
Litli karfi | 19.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
19.4.24 Oddverji SI 76 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.417 kg |
Þorskur | 176 kg |
Skarkoli | 36 kg |
Rauðmagi | 3 kg |
Ufsi | 2 kg |
Samtals | 1.634 kg |
19.4.24 Kambur HU 24 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 3.044 kg |
Þorskur | 690 kg |
Steinbítur | 21 kg |
Ufsi | 19 kg |
Skarkoli | 17 kg |
Rauðmagi | 12 kg |
Ýsa | 8 kg |
Þykkvalúra | 3 kg |
Sandkoli | 2 kg |
Samtals | 3.816 kg |
19.4.24 Báran SI 86 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.080 kg |
Þorskur | 101 kg |
Skarkoli | 38 kg |
Steinbítur | 17 kg |
Samtals | 1.236 kg |