Tómas Þorvaldsson GK-10, togari Þorbjarnar hf., kom til hafnar í Hafnarfirði um klukkan hálfsjö í morgun og lauk þar með fyrsta túr ársins sem hófst 2. janúar síðastliðinn. Túrinn var því rúmar þrjár vikur og er uppistaða aflans þorskur, ýsa og grálúða.
„Veiði hefur gengið mjög vel þennan túrinn og við höfum verið mjög heppnir með veður mestallan túrinn,“ segir í Facebook-færslu Bergþórsgengisins (áhöfn undir stjórn Bergþórs Gunnlaugssonar skipstjóra).
„Við prinsarnir í Bergþórsgengi lögðum í hann þann 2. janúar eftir langt og gott jólafrí, við höfum verið á flakki þennan túrinn en við byrjuðum fyrir vestan,“ segja þeir í færslunni. Var næst haldið austur og svo aftur vestur.
Sunnudaginn síðastliðinn var svo haldið út frá Stakksfirði þar sem skipið hafði verið í sólarhring í vari og stefnan sett á Eldeyjarbanka áður en siglt var til Hafnarfjarðar.