Rannsökuðu hegðun fiska við botnvörpuveiðar

Rannsökuð var hegðun fiska við veiða með botnvörpu.
Rannsökuð var hegðun fiska við veiða með botnvörpu. Ljósmynd/Hafrannsóknastofnun

Nýrri rannsókn er ætlað að auka þekkingu á hegðun algengra bornfiska fiska við veiðar með botnvörpu. Rannsóknin fór fram á rannsóknaskipinu Árna Friðrikssyni og var leiðangursstjóri Haraldur Arnar Einarsson, sérfræðingur í veiðafærarannsóknum hjá Hafrannsóknastofnun.

Fram kemur á vef Hafrannsóknastofnunar að talið sé að rann´soknin sýni „glöggt hvernig hegðun fiska af mismunandi tegundum og stærð getur haft áhrif á hvernig þeir komist undan vörpunni. Á venjulegum botnvörpum er hefðbundið að nota svokallaða „rockhoppera“, sem eru einskonar gúmmíhjól sem þó rúlla ekki eftir botninum. Fiskar geta smogið á milli eða undir hjólin en oftast lyfta fiskarnir sér upp og hafna í vörpunni. Þekking á viðbrögðum fiska við botnvörpunni getur því skipt miklu við hönnun veiðarfæra.“

Rannsóknin fór fram með því að settir voru safnpokar á báða vængi og fyrir miðju botnvörpunnar að utanverðu. Var tilgangurinn að sjá hvar fiskur fór undir veiðarfærið og hvort væri munur eftir tegundum eða stærð.

„Smár þorskur og ýsa fór að mestu undir vörpuna fyrir miðju en stærri fiskar af þessum tegundum frekar við vængi. Meiri breytileiki kom í ljós hjá flatfiskum. Þó mátti sjá að skötuselur fór oftast undir vörpuna við vængi eða í nær 80% tilfella,“ segir á vef Hafrannsóknastofnunar.

Unnið að annri vísindagrein

Vísindamenn fjalla um rannsóknina í vísindagreininni „Inferring fish behaviour at the trawl mouth from escape location“ sem birt hefur verið í vísindatímaritinu Aquatic Biology.

Rannsóknin var unnin í samstarfi við vísindamenn við Hafrannsóknastofnunina í Noregi og Hafrannsóknastofnunina í Kanada. Er nú unnið að annarri vísindagrein úr sömu gögnum þar sem fjöldi fiska af þessum tegundum sem fer undir vörpuna er kannaður og gerður samanburður á degi og nóttu.

mbl.is
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.3.23 535,44 kr/kg
Þorskur, slægður 23.3.23 263,00 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.3.23 448,28 kr/kg
Ýsa, slægð 23.3.23 410,63 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.3.23 275,45 kr/kg
Ufsi, slægður 23.3.23 356,31 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 27.1.23 237,00 kr/kg
Djúpkarfi 8.3.23 213,00 kr/kg
Gullkarfi 23.3.23 444,15 kr/kg
Litli karfi 20.3.23 0,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.3.23 Sævík GK-757 Lína
Þorskur 8.341 kg
Ýsa 1.061 kg
Langa 506 kg
Samtals 9.908 kg
23.3.23 Guðmundur Arnar EA-102 Grásleppunet
Þorskur 3.046 kg
Skarkoli 89 kg
Steinbítur 13 kg
Ýsa 10 kg
Samtals 3.158 kg
23.3.23 Þrasi VE-020 Handfæri
Þorskur 386 kg
Ufsi 5 kg
Samtals 391 kg
23.3.23 Víkurröst VE-070 Handfæri
Þorskur 965 kg
Ufsi 249 kg
Karfi 7 kg
Samtals 1.221 kg

Skoða allar landanir »

Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.3.23 535,44 kr/kg
Þorskur, slægður 23.3.23 263,00 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.3.23 448,28 kr/kg
Ýsa, slægð 23.3.23 410,63 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.3.23 275,45 kr/kg
Ufsi, slægður 23.3.23 356,31 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 27.1.23 237,00 kr/kg
Djúpkarfi 8.3.23 213,00 kr/kg
Gullkarfi 23.3.23 444,15 kr/kg
Litli karfi 20.3.23 0,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.3.23 Sævík GK-757 Lína
Þorskur 8.341 kg
Ýsa 1.061 kg
Langa 506 kg
Samtals 9.908 kg
23.3.23 Guðmundur Arnar EA-102 Grásleppunet
Þorskur 3.046 kg
Skarkoli 89 kg
Steinbítur 13 kg
Ýsa 10 kg
Samtals 3.158 kg
23.3.23 Þrasi VE-020 Handfæri
Þorskur 386 kg
Ufsi 5 kg
Samtals 391 kg
23.3.23 Víkurröst VE-070 Handfæri
Þorskur 965 kg
Ufsi 249 kg
Karfi 7 kg
Samtals 1.221 kg

Skoða allar landanir »