Drög að frumvarpi um svæðisskiptingu strandveiða hefur verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Matvælaráðuneytið kveðst hafa tekið tillit til framkominna athugasemda.
„Fyrirhugað er að skipting aflaheimilda [milli strandveiðisvæða] grundvallist á fjölda báta sem skráður er á hvert svæði fyrir sig á hverju ári. Þannig verði þeim aflaheimildum sem eru til ráðstöfunar skipt jafnt enda sé jafnræði milli svæða best tryggt á þann máta,“ segir í greinargerð frumvarpsdraganna sem birt hefur verið í samráðsgátt stjórnvalda.
Þá er gert ráð fyrir að Fiskistofa stöðvi strandveiðar á hverju landsvæði þegar leyfilegum heildarafla hefur verið náð, en „gert er ráð fyrir að lögfest verði nýtt ákvæði um flutning aflaheimilda milli tímabila og landsvæða innan fiskveiðiársins og einnig verður heimilt að flytja óveiddar aflaheimildir í lok fiskveiðiárs á næsta fiskveiðiár.“
Niðurstöður vegna samráðs um áform stjórnvalda um endurupptöku svæðisskiptra strandveiða voru birtar í gær og höfðu borast 36 umsagnir vegna málsins.
Skiptar skoðanir hafa verið um svæðisskiptingu veiðanna og segir í niðurstöðum samráðs vegna áformanna: „Sumir telja breytingarnar vera neikvætt skref aftur í tímann og að þær muni skapa aukna slysahættu og hafa önnur neikvæð áhrif á aðstæður til strandveiða. Aðrir telja breytingarnar vera til bóta og að þær muni bæta skilyrði til strandveiða. Ráðuneytið lagði mat á umsagnirnar og hafði hliðsjón af þeim við samningu nýs frumvarps.“
Á þriðjudag voru drög að frumvarpinu birt og hafa þegar fjórar umsagnir borist. Sú fyrsta styður svæðisskiptinguna, en þrjár lýsa óánægju með áformin.
„Þetta myndi koma mér og mínum á Norðurlandi rosalega vel og mér lýst vel á þetta,“ skrifar Bjarni Reykjalín Magnússon.
Haraldur Arnfjörð Árnason er ekki á sama máli og segir: „Hræðileg afturför ef þetta frumvarp fer í gegn ,þetta kallast kapphlaup við tímann,síðast dó einn maður í þessu kapphlaupi sem er verið að boða núna.Ég man vel hvernig þetta var menn fóru út á sjó í hvað veðri sem var. Málið er auðleyst 48 daga fyrir alla þetta er svo augljóst öllum nema ráðherranum.“
Emil Andrés Sigurðsson krefst einnig að öllum handfærabátum verði tryggðir 48 veiðidagar og að aðrar takmarkanir verði afnumdar.
„Veiðiheimildir á að skipta niður jafnt á þá sem vilja og geta sótt og handfæraveiðar ættu að gefa frjálsar,“ skrifar Alexander Gabríel Hafþórsson í umsögn sinni.