Stofnmæling botnfiska á Íslandsmiðum hófst mánudaginn 27. febrúar og stendur yfir næstu þrjár vikurnar. Fjögur skip taka þátt í verkefninu og eru það togararnir Breki VE og Gullver NS, auk rannsóknaskipanna Árna Friðrikssyni og Bjarna Sæmundssyni.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Hafrannsóknastofnunar.
Þar segir að togað verður á tæplega 600 stöðvum á 20 til 500 metra dýpi umhverfis landið. Hægt er að fylgjast með leið skipanna og togstöðvum í beinni á kortinu neðst í fréttinni.
„Verkefnið, sem einnig er nefnt marsrall eða togararall, hefur verið framkvæmt með sambærilegum hætti á hverju ári síðan 1985 og er þetta því í 39. skipti sem mælingin fer fram. Helmingur togstöðva var í upphafi staðsettur af skipstjórum en öðrum stöðvum var dreift um miðin með tilviljunarkenndum hætti,“ segir í tilkynningunni.
Þá séu helstu markmiðin að fylgjast með breytingum á stofnstærðum, aldri, fæðu, ástandi og útbreiðslu botnfisktegunda við landið. Auk þess er sýnum safnað vegna fjölda rannsókna, meðal annars á mengunarefnum í sjávarfangi og mat lagt á magn ýmiskonar rusls á sjávarbotni.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 9.6.23 | 420,58 kr/kg |
Þorskur, slægður | 9.6.23 | 383,34 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 9.6.23 | 406,93 kr/kg |
Ýsa, slægð | 9.6.23 | 338,38 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 9.6.23 | 217,37 kr/kg |
Ufsi, slægður | 9.6.23 | 261,79 kr/kg |
Djúpkarfi | 7.6.23 | 343,36 kr/kg |
Gullkarfi | 9.6.23 | 353,68 kr/kg |
Litli karfi | 9.6.23 | 10,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 7.6.23 | 199,00 kr/kg |
10.6.23 Einar Guðnason ÍS-303 Lína | |
---|---|
Þorskur | 5.425 kg |
Ýsa | 1.145 kg |
Steinbítur | 522 kg |
Hlýri | 102 kg |
Keila | 67 kg |
Langa | 21 kg |
Skarkoli | 19 kg |
Ufsi | 18 kg |
Karfi | 14 kg |
Samtals | 7.333 kg |
10.6.23 Lómur Sjóstöng | |
---|---|
Steinbítur | 215 kg |
Þorskur | 143 kg |
Ýsa | 13 kg |
Samtals | 371 kg |
10.6.23 Bliki ÍS-414 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 206 kg |
Samtals | 206 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 9.6.23 | 420,58 kr/kg |
Þorskur, slægður | 9.6.23 | 383,34 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 9.6.23 | 406,93 kr/kg |
Ýsa, slægð | 9.6.23 | 338,38 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 9.6.23 | 217,37 kr/kg |
Ufsi, slægður | 9.6.23 | 261,79 kr/kg |
Djúpkarfi | 7.6.23 | 343,36 kr/kg |
Gullkarfi | 9.6.23 | 353,68 kr/kg |
Litli karfi | 9.6.23 | 10,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 7.6.23 | 199,00 kr/kg |
10.6.23 Einar Guðnason ÍS-303 Lína | |
---|---|
Þorskur | 5.425 kg |
Ýsa | 1.145 kg |
Steinbítur | 522 kg |
Hlýri | 102 kg |
Keila | 67 kg |
Langa | 21 kg |
Skarkoli | 19 kg |
Ufsi | 18 kg |
Karfi | 14 kg |
Samtals | 7.333 kg |
10.6.23 Lómur Sjóstöng | |
---|---|
Steinbítur | 215 kg |
Þorskur | 143 kg |
Ýsa | 13 kg |
Samtals | 371 kg |
10.6.23 Bliki ÍS-414 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 206 kg |
Samtals | 206 kg |