Stefnt að kolefnishlutleysi Vopnafjarðar

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhveris-, orku- og loftslagsráðherra og Guðmundur Kristjánsson, …
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhveris-, orku- og loftslagsráðherra og Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims við undirritun samstarfsyfirlýsingarinnar Ljósmynd/Brim

Nýverið undirrituðu Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Sara Elísabet Svansdóttir, sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps og Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, samstarfsyfirlýsingu sem kveður á um að ráðuneytið, Vopnafjarðarhreppur og Brim hf. hrindi í framkvæmd aðgerðum til að stuðla að kolefnishlutleysi í sveitarfélaginu.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Brims.

Þar segir að samstarf fyrirtækja, ríkis og sveitarfélaga þurfi að „leggja áherslu á aðgerðir til þess að hraða orkuskiptum, uppbyggingu hleðsluinnviða fyrir þungaflutninga, landtengingu skipa, orkunýtingu og möguleika til aukinnar matvælaframleiðslu, kolefnisbindingar og nýtingu á lífrænum úrgangi.“

Þetta sé forsenda þess að hægt sé að ná markmiðum stjórnvalda um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda, kolefnishlutleysi og full orkuskipti. Þessi markmið kalli jafnframt á „skýra sýn og nýja nálgun sem mun byggja á markmiðum fyrir einstaka geira atvinnulífsins, aukna áherslu á loftslagshagstjórn og forgangsröðun í þágu loftslagsmarkmiða á öllum sviðum samfélagsins.“

Fagnar samstarfinu

„Íslensk stjórnvöld hafa sett sér metnaðarfull markmið í loftslagsmálum og til að þau náist þurfa allir að leggja sitt af mörkum. Ég fagna því frumkvæði sveitarfélagsins og Brims að hrinda í framkvæmd aðgerðum sem stuðla að kolefnishlutleysi,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra í tilkynningunni.

„Vopnafjarðahreppur fagnar þessu samstarfi við Brim og ráðuneytið varðandi aðgerðir til að stuðla að kolefnishlutleysi í Vopnafjarðarhreppi og hlakkar til samstarfsins,“ segir Sara Elísabet Svansdóttir, sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps.

Sara Elísabet Svansdóttir, sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps.
Sara Elísabet Svansdóttir, sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps.

„Til að ná markmiðum í umhverfis- og loftlagsmálum er skynsamlegt að hafa samvinnu og þess vegna fagnar Brim þessu samstarfi við stjórnvöld og Vopnfirðinga. Það hraðar vonandi nauðsynlegum aðgerðum og færir alla nær sameiginlegum markmiðum. Skynsöm nýting auðlinda leggur grunninn að starfsemi Brim og félagið mun leggja sitt af mörkum til ábyrgrar auðlindanýtingar og skynsamlegra loftslagsaðgerða. Brim hefur sett skýr umhverfismarkmið og tekið saman kolefnisspor félagsins frá árinu 2015 og þá birtir félagið árlega umhverfisuppgjör,“ segir Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.4.24 483,02 kr/kg
Þorskur, slægður 16.4.24 455,99 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.4.24 225,04 kr/kg
Ýsa, slægð 16.4.24 252,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.4.24 257,55 kr/kg
Ufsi, slægður 16.4.24 256,86 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 16.4.24 209,29 kr/kg
Litli karfi 16.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.4.24 Benni ST 5 Grásleppunet
Grásleppa 4.015 kg
Þorskur 1.392 kg
Steinbítur 41 kg
Skarkoli 36 kg
Samtals 5.484 kg
16.4.24 Kóngsey ST 4 Grásleppunet
Þorskur 856 kg
Grásleppa 190 kg
Skarkoli 54 kg
Samtals 1.100 kg
16.4.24 Hafrafell SU 65 Lína
Keila 826 kg
Langa 168 kg
Ufsi 46 kg
Skötuselur 33 kg
Steinbítur 28 kg
Ýsa 18 kg
Karfi 3 kg
Samtals 1.122 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.4.24 483,02 kr/kg
Þorskur, slægður 16.4.24 455,99 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.4.24 225,04 kr/kg
Ýsa, slægð 16.4.24 252,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.4.24 257,55 kr/kg
Ufsi, slægður 16.4.24 256,86 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 16.4.24 209,29 kr/kg
Litli karfi 16.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.4.24 Benni ST 5 Grásleppunet
Grásleppa 4.015 kg
Þorskur 1.392 kg
Steinbítur 41 kg
Skarkoli 36 kg
Samtals 5.484 kg
16.4.24 Kóngsey ST 4 Grásleppunet
Þorskur 856 kg
Grásleppa 190 kg
Skarkoli 54 kg
Samtals 1.100 kg
16.4.24 Hafrafell SU 65 Lína
Keila 826 kg
Langa 168 kg
Ufsi 46 kg
Skötuselur 33 kg
Steinbítur 28 kg
Ýsa 18 kg
Karfi 3 kg
Samtals 1.122 kg

Skoða allar landanir »