61% mótfallin laxeldi í opnum sjókvíum

Fiskeldi.
Fiskeldi. mbl.is/Helgi Bjarnason

61% aðspurðra í nýrri skoðanakönnun eru neikvæð gagnvart laxeldi í opnum sjókvíum á meðan 14% svarenda segjast jákvæð gagnvart slíku laxeldi.

Þetta kemur fram í nýrri könnun Gallup sem var gerð í öllum landshlutum dagana 16. til 27. febrúar.

„Þetta er töluverð breyting í viðhorfi frá því að Gallup gerði samskonar könnun haustið 2021 og ljóst að sífellt fleiri Íslendingar eru neikvæðir í garð laxeldis í opnum sjókvíum,” segir í tilkynningu frá Verndarsjóði Villtra Laxastofna (NASF), Íslenska Náttúruverndarsjóðnum (IWF), Landssambandi Veiðifélaga og Laxinn Lifi.

Einnig var spurt hvort þátttakendur teldu að banna ætti laxeldi í opnum sjókvíum og af þeim 79% sem tóku afstöðu voru tveir þriðjuhlutar á því að slíkt ætti að banna, eða 52%.

Undirrituð samtök skora á ríkisstjórn Íslands að hlusta á vilja þjóðarinnar og hverfa frá þeirri mengandi og skaðlegu starfsemi sem laxeldi í opnum sjókvíum er. Reynsla annara þjóða sýnir að umhverfisáhrif sjókvíaeldis eru óásættanlegt og það er ekki réttlætanlegt að útrýma villtum laxastofnum og vistkerfum fyrir ofsagróða sjókvíaeldisfyrirtækja,” segir í yfirlýsingu frá NASF, IWF, Landssambandi Veiðifélaga og Laxinn Lifi.

„Nýútkomin skýrsla ríkisendurskoðunar sýnir skýrt að regluverk og eftirlit með iðnaðinum er í molum og að hagsmunaverðir iðnaðarins hafa haft óeðlilega mikil áhrif á löggjöfina. Iðnaðurinn fær að hafa eftirlit með sjálfum sér og nú þegar hafa grafalvarleg umhverfisslys átt sér stað. Helst ber þar að nefna sleppingu hjá Arnarlaxi þar sem 88.000 frjóir, norskir eldislaxar sluppu út úr einni sjókví út í íslenskt vistkerfi,” segir þar einnig.

Fram kemur að öll áform um stækkun iðnaðarins séu bein aðför að náttúru landsins og villtum laxi, gegn vilja meirihluta þjóðarinnar.

mbl.is
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 8.6.23 479,38 kr/kg
Þorskur, slægður 8.6.23 538,98 kr/kg
Ýsa, óslægð 8.6.23 387,79 kr/kg
Ýsa, slægð 8.6.23 374,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 8.6.23 196,88 kr/kg
Ufsi, slægður 8.6.23 261,64 kr/kg
Djúpkarfi 5.6.23 124,00 kr/kg
Gullkarfi 8.6.23 364,49 kr/kg
Litli karfi 15.5.23 10,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 7.6.23 199,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

8.6.23 Afi Handfæri
Þorskur 762 kg
Ufsi 125 kg
Samtals 887 kg
8.6.23 Straumnes Handfæri
Þorskur 786 kg
Ufsi 327 kg
Samtals 1.113 kg
8.6.23 Sara Handfæri
Þorskur 765 kg
Ufsi 33 kg
Samtals 798 kg
8.6.23 Bjartmar ÍS-499 Handfæri
Þorskur 760 kg
Ufsi 10 kg
Samtals 770 kg
8.6.23 Norðri Handfæri
Þorskur 743 kg
Ýsa 11 kg
Samtals 754 kg

Skoða allar landanir »

Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 8.6.23 479,38 kr/kg
Þorskur, slægður 8.6.23 538,98 kr/kg
Ýsa, óslægð 8.6.23 387,79 kr/kg
Ýsa, slægð 8.6.23 374,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 8.6.23 196,88 kr/kg
Ufsi, slægður 8.6.23 261,64 kr/kg
Djúpkarfi 5.6.23 124,00 kr/kg
Gullkarfi 8.6.23 364,49 kr/kg
Litli karfi 15.5.23 10,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 7.6.23 199,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

8.6.23 Afi Handfæri
Þorskur 762 kg
Ufsi 125 kg
Samtals 887 kg
8.6.23 Straumnes Handfæri
Þorskur 786 kg
Ufsi 327 kg
Samtals 1.113 kg
8.6.23 Sara Handfæri
Þorskur 765 kg
Ufsi 33 kg
Samtals 798 kg
8.6.23 Bjartmar ÍS-499 Handfæri
Þorskur 760 kg
Ufsi 10 kg
Samtals 770 kg
8.6.23 Norðri Handfæri
Þorskur 743 kg
Ýsa 11 kg
Samtals 754 kg

Skoða allar landanir »