Áhafnir íslensku loðnuskipanna hafa unnið hörðum höndum að veiða allan þann afla sem heimild er fyrir og hafa náð að veiða yfir 65 þúsund tonn á undanförnum tíu dögum. Það sem af er vertíð hafa skipin landað tæplega 180 þúsund tonna afla, en eftir á að veiða rúmlega 149 þúsund tonn.
Þetta má lesa úr aflatölum á vef Fiskistofu.
Dagar vertíðarinnar eru sífellt færri og fer nú hver að verða síðastur að ná aflanum. Hafa skipin elt vestangöngu loðnunnar og er nú fjöldi skipa á veiðum í utanverðum Breiðafirði, rétt suður af Látrabjargi.
Vilhelm Þorsteinsson EA 11 hefur landað mestum loðnuafla síðustu tíu daga, samkvæmt breytingu í aflaskráningu Fiskistofu, og hefur komið til hafnar með 5.839 tonn. Þá hefur Álsey VE borið 4.282 tonn að landi á þessum tíma, Sigurður VE 40.72 tonn og Víkingur AK 4.010 tonn.
Þá var Vilhelm Þorsteinsson EA í morgun enn aflahæsta skip vertíðarinnar með 14.243 tonn. Þá hefur Aðalsteinn Jónsson SU landað 12.644 tonnum og Beitir NK 12.316 tonnum. Sigurður VE hefur skipið borið fjórða mesta loðnuafla að landi það sem af er vertíð, alls 11.842 tonn.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 23.4.24 | 456,31 kr/kg |
Þorskur, slægður | 23.4.24 | 532,04 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 23.4.24 | 237,18 kr/kg |
Ýsa, slægð | 23.4.24 | 143,44 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 23.4.24 | 177,69 kr/kg |
Ufsi, slægður | 23.4.24 | 227,61 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 23.4.24 | 177,61 kr/kg |
Litli karfi | 19.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
23.4.24 Silfurborg SU 22 Dragnót | |
---|---|
Steinbítur | 3.980 kg |
Skarkoli | 1.183 kg |
Þorskur | 328 kg |
Sandkoli | 195 kg |
Ýsa | 82 kg |
Samtals | 5.768 kg |
23.4.24 Sandfell SU 75 Lína | |
---|---|
Þorskur | 2.549 kg |
Steinbítur | 321 kg |
Keila | 115 kg |
Ýsa | 98 kg |
Ufsi | 19 kg |
Karfi | 17 kg |
Langa | 7 kg |
Samtals | 3.126 kg |
23.4.24 Gunnar Bjarnason SH 122 Dragnót | |
---|---|
Steinbítur | 1.270 kg |
Samtals | 1.270 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 23.4.24 | 456,31 kr/kg |
Þorskur, slægður | 23.4.24 | 532,04 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 23.4.24 | 237,18 kr/kg |
Ýsa, slægð | 23.4.24 | 143,44 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 23.4.24 | 177,69 kr/kg |
Ufsi, slægður | 23.4.24 | 227,61 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 23.4.24 | 177,61 kr/kg |
Litli karfi | 19.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
23.4.24 Silfurborg SU 22 Dragnót | |
---|---|
Steinbítur | 3.980 kg |
Skarkoli | 1.183 kg |
Þorskur | 328 kg |
Sandkoli | 195 kg |
Ýsa | 82 kg |
Samtals | 5.768 kg |
23.4.24 Sandfell SU 75 Lína | |
---|---|
Þorskur | 2.549 kg |
Steinbítur | 321 kg |
Keila | 115 kg |
Ýsa | 98 kg |
Ufsi | 19 kg |
Karfi | 17 kg |
Langa | 7 kg |
Samtals | 3.126 kg |
23.4.24 Gunnar Bjarnason SH 122 Dragnót | |
---|---|
Steinbítur | 1.270 kg |
Samtals | 1.270 kg |