Segir vafa geta verið um skilgreiningu lögsögunnar

Bjarni Már Magnússon segir íslensk stjórnvöld ekki hafa afhent Sameinuðu …
Bjarni Már Magnússon segir íslensk stjórnvöld ekki hafa afhent Sameinuðu þjóðunum öll þau gögn sem krafist er í hafréttarsamningnum. Ljósmynd/Aðsend

Íslensk yfirvöld virðast ekki hafa afhent fullnægjandi upplýsingar um hafsvæðið sem Ísland telur eigin efnahagslögsögu í samræmi við ákvæði hafréttarsamnings Sameinuðu þjóðanna. Aðeins virðist hafa verið afhent þýðing á upphaflegum lögum um íslensk hafsvæði frá 1979, en engar uppfærslur í tengslum við þær breytingar sem hafa átt sér stað frá þeim tíma.

Bjarni Már Magnússon, prófessor við lagadeild Háskólans á Bifröst, vekur athygli á þessu í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag og bendir hann á að það getur haft lagalegar afleiðingar að skila ekki inn fullnægjandi gögnum.

Vísar hann til dóms Alþjóðadómstólsins í Haag í máli Níkaragva og Kólumbíu frá í apríl á síðasta ári þar sem vafi var sagður ríkja um staðsetningu grunnlínu Níkaragva, að hún væri óákveðin (e. unsettled), í ljósi þess að ríkið hafi ekki skilað upplýsingum um hana til aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna.

„Hvort sem mistök hafa átt sér stað við birtingu umræddra upplýsinga, um misskilning er að ræða eða íslensk stjórnvöld hafa vísvitandi ákveðið að hunsa umrædda skyldu þá verður að spyrja hvort ekki sé æskilegt að sem minnstur vafi ríki um víðáttu íslenskra hafsvæða,“ skrifar Bjarni Már í grein sinni.

Greinina má lesa í heild sinni í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg
25.4.24 Patrekur BA 64 Dragnót
Skarkoli 1.853 kg
Þorskur 271 kg
Sandkoli 102 kg
Ýsa 8 kg
Samtals 2.234 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg
25.4.24 Patrekur BA 64 Dragnót
Skarkoli 1.853 kg
Þorskur 271 kg
Sandkoli 102 kg
Ýsa 8 kg
Samtals 2.234 kg

Skoða allar landanir »