Fagna áratugar starfi í þágu jafnréttis í sjávarútvegi

„Markmið félagsins er einfalt, við viljum fleiri konur í þessa …
„Markmið félagsins er einfalt, við viljum fleiri konur í þessa stórskemmtilegu grein,“ segir Margrét Kristín Pétursdóttir, formaður KIS - félags kvenna í sjávarútvegi. Ljósmynd/Þórkatla Albertsdóttir

Hinn 26. ágúst verður félag kvenna í sjávarútvegi, KIS, 10 ára. Stefnt er að því að gefa út sérstakt afmælisrit og halda upp á tímamótin með hátíðlegum hætti. Dagskráin er enn í mótun en Margrét Kristín Pétursdóttir, formaður KIS, lofar því að hún verði góð. Í viðtali í síðasta blaði 200 mílna kveðst hún þakklát fyrirrennurum sínum

„Í mínum huga markar 10 ára afmæli KIS ákveðna og markvissa samstöðu kvenna í sjávarútvegi. Samstöðu sem einkennist af áhuga á greininni, framtíðarsýn og krafti sem getur nýst henni á margvíslegan hátt. Í þessi ár höfum við eflt konur í geiranum og unnið markvisst í því að gera þær sýnilegri,“ segir Margrét sem tók við formennsku félagsins á síðasta ári.

„Félagið hefur haft digga bakhjarla eins og Íslandsbanka sem hefur frá upphafi gert félaginu kleift að vaxa og styrkjast og metur félagið það mikils. Háskólinn á Akureyri er einnig bakhjarl félagsins en þar er boðið upp á öflugt nám í sjávarútvegsfræði og líftækni við Auðlindadeild skólans, sem margar konur hafa sótt og skilað öflugum starfskröftum inn í greinina. Sett hefur verið upp Mentor-prógramm KIS þar sem félagskonur bjóða sig fram við að aðstoða nemendur við Auðlindadeild skólans með mánaðarlegum fundum og þannig hjálpa nemendum að tengja nám sitt við atvinnulífið.“

Rúmlega 300 konur eru í KIS og fer þeim fjölgandi að sögn Margrétar sem segir jafnframt viðburði vel sótta.

Lesa má viðtalið við Margréti í blaði 200 mílna.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 4.10.23 599,05 kr/kg
Þorskur, slægður 4.10.23 452,87 kr/kg
Ýsa, óslægð 4.10.23 268,61 kr/kg
Ýsa, slægð 4.10.23 270,93 kr/kg
Ufsi, óslægður 4.10.23 290,07 kr/kg
Ufsi, slægður 4.10.23 282,92 kr/kg
Djúpkarfi 21.9.23 301,00 kr/kg
Gullkarfi 4.10.23 391,84 kr/kg
Litli karfi 21.9.23 13,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 4.10.23 233,26 kr/kg

Fleiri tegundir »

4.10.23 Kristinn HU 812 Línutrekt
Ýsa 4.459 kg
Þorskur 3.263 kg
Steinbítur 58 kg
Hlýri 40 kg
Samtals 7.820 kg
4.10.23 Haförn ÞH 26 Dragnót
Skarkoli 2.568 kg
Þorskur 1.686 kg
Ýsa 1.567 kg
Steinbítur 168 kg
Samtals 5.989 kg
4.10.23 Særif SH 25 Lína
Langa 3.423 kg
Þorskur 508 kg
Ýsa 342 kg
Keila 192 kg
Karfi 150 kg
Steinbítur 108 kg
Ufsi 80 kg
Blálanga 57 kg
Sandkoli 9 kg
Samtals 4.869 kg

Skoða allar landanir »

Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 4.10.23 599,05 kr/kg
Þorskur, slægður 4.10.23 452,87 kr/kg
Ýsa, óslægð 4.10.23 268,61 kr/kg
Ýsa, slægð 4.10.23 270,93 kr/kg
Ufsi, óslægður 4.10.23 290,07 kr/kg
Ufsi, slægður 4.10.23 282,92 kr/kg
Djúpkarfi 21.9.23 301,00 kr/kg
Gullkarfi 4.10.23 391,84 kr/kg
Litli karfi 21.9.23 13,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 4.10.23 233,26 kr/kg

Fleiri tegundir »

4.10.23 Kristinn HU 812 Línutrekt
Ýsa 4.459 kg
Þorskur 3.263 kg
Steinbítur 58 kg
Hlýri 40 kg
Samtals 7.820 kg
4.10.23 Haförn ÞH 26 Dragnót
Skarkoli 2.568 kg
Þorskur 1.686 kg
Ýsa 1.567 kg
Steinbítur 168 kg
Samtals 5.989 kg
4.10.23 Særif SH 25 Lína
Langa 3.423 kg
Þorskur 508 kg
Ýsa 342 kg
Keila 192 kg
Karfi 150 kg
Steinbítur 108 kg
Ufsi 80 kg
Blálanga 57 kg
Sandkoli 9 kg
Samtals 4.869 kg

Skoða allar landanir »