Allt að 24.000 tonna laxeldi í Ölfusi

Íslenska fyrirtækið GeoSalmo áformar að reisa allt að 24.000 tonna …
Íslenska fyrirtækið GeoSalmo áformar að reisa allt að 24.000 tonna laxeldisstöð vestan við Þorlákshöfn. Landsskipulag

Skipulagsstofnun hefur gefið út álit sem staðfestir umhverfismatsskýrslu GeoSalmo sem fjallar um áætlanir fyrirtækisins um að reisa allt að 24.000 tonna laxeldisstöð vestan við Þorlákshöfn. Vinna við umhverfismat hefur staðið yfir í um tvö ár.

Í tilkynningu frá GeoSalmo segir að fyrirtækið leggi áherslu á ábyrga nýtingu auðlinda, sjálfbærni og hringrásarhagkerfið. Auk þess leggi það áherslu á lágmörkun umhverfisáhrifa og ábyrga nýtingu auðlinda, sér í lagi vatnsauðlindar. Álitið staðfesti fyrirhugaðar aðgerðir GeoSalmo í þeim efnum.

GeoSalmo áætlar að reisa eldisstöð sem getur framleitt allt að 7.500 tonn af laxi á ári. Fyrirtækið hefur þegar samið við norska fyrirtækið Artec Aqua um hönnun og uppbyggingu stöðvarinnar.

Jens Þórðarson, framkvæmdastjóri GeoSalmo, segir í tilkynningunni að það sé fagnaðarefni að fá álit Skipulagsstofnunar sem staðfesti þá vinnu sem liggur að baki umhverfismatinu.

„Þetta markar lok tveggja ára verkefnis og er stærsti einstaki áfanginn í undirbúningi félagsins fyrir uppbyggingu sína. Með þessari niðurstöðu styttist í að félagið geti hafið framkvæmdir og opnast þannig nýr kafli í sögu félagsins,“ er haft eftir honum í tilkynningunni.

mbl.is
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.9.23 548,63 kr/kg
Þorskur, slægður 22.9.23 592,02 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.9.23 268,46 kr/kg
Ýsa, slægð 22.9.23 206,99 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.9.23 248,35 kr/kg
Ufsi, slægður 22.9.23 304,22 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.7.23 10,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.9.23 301,00 kr/kg
Gullkarfi 22.9.23 271,49 kr/kg
Litli karfi 21.9.23 13,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.9.23 Sævar SF 272 Handfæri
Ufsi 1.089 kg
Þorskur 436 kg
Samtals 1.525 kg
23.9.23 Gísli Súrsson GK 8 Lína
Þorskur 418 kg
Hlýri 165 kg
Karfi 85 kg
Keila 64 kg
Steinbítur 6 kg
Samtals 738 kg
23.9.23 Auður Vésteins SU 88 Lína
Þorskur 283 kg
Hlýri 277 kg
Grálúða 213 kg
Karfi 135 kg
Keila 84 kg
Ufsi 40 kg
Ýsa 5 kg
Steinbítur 2 kg
Samtals 1.039 kg

Skoða allar landanir »

Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 22.9.23 548,63 kr/kg
Þorskur, slægður 22.9.23 592,02 kr/kg
Ýsa, óslægð 22.9.23 268,46 kr/kg
Ýsa, slægð 22.9.23 206,99 kr/kg
Ufsi, óslægður 22.9.23 248,35 kr/kg
Ufsi, slægður 22.9.23 304,22 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.7.23 10,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.9.23 301,00 kr/kg
Gullkarfi 22.9.23 271,49 kr/kg
Litli karfi 21.9.23 13,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.9.23 Sævar SF 272 Handfæri
Ufsi 1.089 kg
Þorskur 436 kg
Samtals 1.525 kg
23.9.23 Gísli Súrsson GK 8 Lína
Þorskur 418 kg
Hlýri 165 kg
Karfi 85 kg
Keila 64 kg
Steinbítur 6 kg
Samtals 738 kg
23.9.23 Auður Vésteins SU 88 Lína
Þorskur 283 kg
Hlýri 277 kg
Grálúða 213 kg
Karfi 135 kg
Keila 84 kg
Ufsi 40 kg
Ýsa 5 kg
Steinbítur 2 kg
Samtals 1.039 kg

Skoða allar landanir »