Felldu niður vsk á ferskan og saltaðan þorsk

Virðiraukaskattur hefur verið tímabundið afnumin á ferskan og saltaðan þorsk …
Virðiraukaskattur hefur verið tímabundið afnumin á ferskan og saltaðan þorsk í Portúgal. Ljósmynd/Vinnslustöðin

Ferskur og saltaður þorskur er nú undanskilinn virðisaukaskatti í Portúgal. Áður var lagður á þessar afurðir 6% virðisaukaskattur en frá 18. apríl síðastliðnum til 31. október næstkomandi er skatturinn ekki innheimtur.

„Spurn eftir saltfiski hefur aukist lítillega á undanförnum vikum en ég tengi það ekki endilega því að virðisaukaskatturinn var afnuminn. Það þarf lengri tíma til að draga slíkar ályktanir. Við höfum annars sterka stöðu og markaðshlutdeild með íslenska saltfiskinn sem er hátt skrifaður hér,“ segir Nuno Araujo, framkvæmdastjóri Grupeixe, í færslu á vef Vinnslustöðvarinnar en Grupeixe er dótturfélag íslensku útgerðarinnar.

„Laun eru lág í Portúgal, verðbólga, rýrnandi kaupmáttur, háir vextir og hátt húsnæðisverð. Venjulegar fjölskyldur eiga í erfiðleikum með að eignast eða leigja íbúðir. Í slíku ástandi er matvörumarkaðurinn erfiður og samkeppni þar mikil og hörð. Húsnæðismálin og vextirnir eru mál málanna í samfélagsumræðunni hérna. Ljós punktur er að atvinnuleysi er tiltölulega lítið og tekjur af erlendum ferðamönnum koma sér vel nú sem fyrr,“ segir Nuno.

Tímabundin undanþága frá virðisaukaskatti var samþykkt til að létta undir kostnaði heimilanna í landinu, en að óbreyttu tekur skattheimtan gildi á ný í nóvember.

mbl.is
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.9.23 481,38 kr/kg
Þorskur, slægður 24.9.23 529,80 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.9.23 248,34 kr/kg
Ýsa, slægð 24.9.23 241,69 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.9.23 277,81 kr/kg
Ufsi, slægður 24.9.23 303,65 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.7.23 10,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.9.23 301,00 kr/kg
Gullkarfi 24.9.23 259,19 kr/kg
Litli karfi 21.9.23 13,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.9.23 Sævar SF 272 Handfæri
Ufsi 1.089 kg
Þorskur 436 kg
Samtals 1.525 kg
23.9.23 Gísli Súrsson GK 8 Lína
Þorskur 418 kg
Hlýri 165 kg
Karfi 85 kg
Keila 64 kg
Steinbítur 6 kg
Samtals 738 kg
23.9.23 Auður Vésteins SU 88 Lína
Þorskur 283 kg
Hlýri 277 kg
Grálúða 213 kg
Karfi 135 kg
Keila 84 kg
Ufsi 40 kg
Ýsa 5 kg
Steinbítur 2 kg
Samtals 1.039 kg

Skoða allar landanir »

Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.9.23 481,38 kr/kg
Þorskur, slægður 24.9.23 529,80 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.9.23 248,34 kr/kg
Ýsa, slægð 24.9.23 241,69 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.9.23 277,81 kr/kg
Ufsi, slægður 24.9.23 303,65 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.7.23 10,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.9.23 301,00 kr/kg
Gullkarfi 24.9.23 259,19 kr/kg
Litli karfi 21.9.23 13,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.9.23 Sævar SF 272 Handfæri
Ufsi 1.089 kg
Þorskur 436 kg
Samtals 1.525 kg
23.9.23 Gísli Súrsson GK 8 Lína
Þorskur 418 kg
Hlýri 165 kg
Karfi 85 kg
Keila 64 kg
Steinbítur 6 kg
Samtals 738 kg
23.9.23 Auður Vésteins SU 88 Lína
Þorskur 283 kg
Hlýri 277 kg
Grálúða 213 kg
Karfi 135 kg
Keila 84 kg
Ufsi 40 kg
Ýsa 5 kg
Steinbítur 2 kg
Samtals 1.039 kg

Skoða allar landanir »