Á næstunni verða sett upp við Grindavík tvö upplýsingaskilti um sjóslys og skipskaða sem orðið hafa á þeim slóðum.
Framtak þetta er samstarf Minja- og sögufélags Grindavíkur, Björgunarsveitarinnar Þorbjarnar í Grindavík og Gunnars Tómassonar, útgerðarmanns í Þorbirninum, sem safnað hefur upplýsingunum sem á skiltunum verður að finna.
Fyrir um áratug var fyrsta skiltinu um þetta efni komið fyrir. Þar greinir frá skipströndum og öðru slíku á strandlengjunni frá Krýsuvíkurbergi og út að Grindavík frá því um 1500 fram á 21. öldina. Nú er haldið áfram og sagt af björgunum og óhöppum á svæðinu frá Grindavík og út fyrir Reykjanestá.
„Alls eru tilvikin – það er sjóslysin og björgunaraðgerðir sem þarna segir frá, rúmlega 100 og best að taka fram að listinn er ekki tæmandi. Að halda þessari sögu til haga hefur verið áhugamál mitt og ég hef sótt í margvíslegar heimildir. Margt hefur til dæmis mátt finna í árbókum Slysavarnafélags Íslands og sumt í gömlum bókum. Munnlegar heimildir eru líkar margar,“ segir Gunnar sem lengi var formaður Björgunarsveitarinnar Þorbjarnar í Grindavík. Því sama hlutverki gegndi einnig faðir hans, Tómas Þorvaldsson (f. 1919, d. 2008), og segir Gunnar að upplýsingar hans hafi reynst sér dýrmætar.
Nánari umfjöllun er að finna í Morgunblaðinu í dag.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 28.9.23 | 568,67 kr/kg |
Þorskur, slægður | 28.9.23 | 446,59 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 28.9.23 | 272,36 kr/kg |
Ýsa, slægð | 28.9.23 | 273,11 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 28.9.23 | 261,25 kr/kg |
Ufsi, slægður | 28.9.23 | 238,90 kr/kg |
Djúpkarfi | 21.9.23 | 301,00 kr/kg |
Gullkarfi | 28.9.23 | 298,06 kr/kg |
Litli karfi | 21.9.23 | 13,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 25.9.23 | 139,79 kr/kg |
28.9.23 Straumey EA 50 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 3.563 kg |
Ýsa | 817 kg |
Steinbítur | 34 kg |
Samtals | 4.414 kg |
28.9.23 Indriði Kristins BA 751 Lína | |
---|---|
Ýsa | 604 kg |
Steinbítur | 39 kg |
Þorskur | 5 kg |
Skarkoli | 3 kg |
Samtals | 651 kg |
28.9.23 Hafborg EA 152 Dragnót | |
---|---|
Þorskur | 4.983 kg |
Ýsa | 2.602 kg |
Karfi | 533 kg |
Skarkoli | 353 kg |
Ufsi | 36 kg |
Steinbítur | 17 kg |
Langlúra | 17 kg |
Hlýri | 15 kg |
Þykkvalúra | 6 kg |
Samtals | 8.562 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 28.9.23 | 568,67 kr/kg |
Þorskur, slægður | 28.9.23 | 446,59 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 28.9.23 | 272,36 kr/kg |
Ýsa, slægð | 28.9.23 | 273,11 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 28.9.23 | 261,25 kr/kg |
Ufsi, slægður | 28.9.23 | 238,90 kr/kg |
Djúpkarfi | 21.9.23 | 301,00 kr/kg |
Gullkarfi | 28.9.23 | 298,06 kr/kg |
Litli karfi | 21.9.23 | 13,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 25.9.23 | 139,79 kr/kg |
28.9.23 Straumey EA 50 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 3.563 kg |
Ýsa | 817 kg |
Steinbítur | 34 kg |
Samtals | 4.414 kg |
28.9.23 Indriði Kristins BA 751 Lína | |
---|---|
Ýsa | 604 kg |
Steinbítur | 39 kg |
Þorskur | 5 kg |
Skarkoli | 3 kg |
Samtals | 651 kg |
28.9.23 Hafborg EA 152 Dragnót | |
---|---|
Þorskur | 4.983 kg |
Ýsa | 2.602 kg |
Karfi | 533 kg |
Skarkoli | 353 kg |
Ufsi | 36 kg |
Steinbítur | 17 kg |
Langlúra | 17 kg |
Hlýri | 15 kg |
Þykkvalúra | 6 kg |
Samtals | 8.562 kg |