Fiskistofa ekki enn bætt úr vanköntum frá 2018

Í eftirfylgniúttekt Ríkisendurskoðunar kemur fram að Fiskistofu skorti greinagóða yfirsýn …
Í eftirfylgniúttekt Ríkisendurskoðunar kemur fram að Fiskistofu skorti greinagóða yfirsýn um bein og óbein tengsl aðila í íslenskum sjávarútvegi. mbl.is/Þorgeir Baldursson

Matvælaráðuneytið og Fiskistofa hafa ekki brugðist með viðunandi hætti við úrbótatillögum Ríkisendurskoðunar frá árinu 2018 í sambandi við eftirlit stofnananna með vigtun sjávarafla, brottkasti og samþjöppun aflaheimilda.

Ríkisendurskoðun ítrekar því í heild sinni eða að hluta tíu af ellefu úrbótatillögum sem stofnunin lagði fram í skýrslu árið 2018.

Þetta kemur fram í nýrri eftirfylgniúttekt Ríkisendurskoðunar sem stofnunin kynnti fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis fyrr í dag

Skorti yfirsýn um tengsl í sjávarútvegi

Þar kemur fram að nauðsynlegar úrbætur hafi ekki náð fram að ganga á síðustu fimm árum og að flestir þeir veikleikar sem Ríkisendurskoðun fjallaði um á sínum tíma séu enn til staðar.

Eftirlit Fiskistofu með vigtun afla og brottkasti er enn takmarkað og vísbendingar eru um að umfang brottkasts hafi verið vanmetið. Fiskistofa hefur ekki tekið upp verklag sem tryggir að yfirráð tengdra aðila yfir aflahlutdeildum séu könnuð með markvissum og reglubundnum hætti,“ stendur í tilkynningu frá Ríkisendurskoðun.

Að auki er tekið fram að Fiskistofu skorti greinagóða yfirsýn um bein og óbein tengsl aðila í íslenskum sjávarútvegi. 

mbl.is
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 21.9.23 583,82 kr/kg
Þorskur, slægður 21.9.23 321,98 kr/kg
Ýsa, óslægð 21.9.23 294,55 kr/kg
Ýsa, slægð 21.9.23 219,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 21.9.23 241,23 kr/kg
Ufsi, slægður 21.9.23 195,95 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.7.23 10,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.9.23 301,00 kr/kg
Gullkarfi 21.9.23 344,30 kr/kg
Litli karfi 21.9.23 13,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

21.9.23 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Ýsa 3.416 kg
Þorskur 1.199 kg
Steinbítur 409 kg
Skarkoli 343 kg
Langa 12 kg
Samtals 5.379 kg
21.9.23 Straumey EA 50 Línutrekt
Þorskur 3.232 kg
Ýsa 1.905 kg
Steinbítur 32 kg
Samtals 5.169 kg
21.9.23 Jónína Brynja ÍS 55 Lína
Ýsa 3.334 kg
Steinbítur 315 kg
Skarkoli 102 kg
Þorskur 68 kg
Langa 48 kg
Karfi 10 kg
Samtals 3.877 kg

Skoða allar landanir »

Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 21.9.23 583,82 kr/kg
Þorskur, slægður 21.9.23 321,98 kr/kg
Ýsa, óslægð 21.9.23 294,55 kr/kg
Ýsa, slægð 21.9.23 219,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 21.9.23 241,23 kr/kg
Ufsi, slægður 21.9.23 195,95 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.7.23 10,00 kr/kg
Djúpkarfi 21.9.23 301,00 kr/kg
Gullkarfi 21.9.23 344,30 kr/kg
Litli karfi 21.9.23 13,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

21.9.23 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Ýsa 3.416 kg
Þorskur 1.199 kg
Steinbítur 409 kg
Skarkoli 343 kg
Langa 12 kg
Samtals 5.379 kg
21.9.23 Straumey EA 50 Línutrekt
Þorskur 3.232 kg
Ýsa 1.905 kg
Steinbítur 32 kg
Samtals 5.169 kg
21.9.23 Jónína Brynja ÍS 55 Lína
Ýsa 3.334 kg
Steinbítur 315 kg
Skarkoli 102 kg
Þorskur 68 kg
Langa 48 kg
Karfi 10 kg
Samtals 3.877 kg

Skoða allar landanir »