Gripu til lúsalyfja á Vestfjörðum

Fiskisjúkdómanefnd mælti á síðasta fundi sínum með samþykkt umsókna um …
Fiskisjúkdómanefnd mælti á síðasta fundi sínum með samþykkt umsókna um lyfjameðhöndlun gegn laxalús á tveimur stððum í Arnarfirði og einum í Patreksfirði. mbl.is/Helgi Bjarnason

Fiskisjúkdómanefnd samþykkti á síðasta fundi sínum að mæla með því að eldislax í sjókvíum á tveimur svæðum í Arnarfirði og einu svæði í Patreksfirði yrði meðhöndlaður með lyfjum gegn laxalús. Ekki hafa verið birtar upplýsingar um útbreiðslu laxalúsa í íslensku sjókvíaeldi frá því í desember 2022.

Í fundargerð fiskisjúkdómanefndar frá 26. maí síðastliðnum kemur fram að nefndin hafi mælt með því að samþykkt yrði umsókn um leyfi til lúsameðhöndlunar á eldislaxi með lyfinu Alphamax (Deltamethrin) í sjókvíum í Kvígindisdal í Patreksfirði. Einnig var mælt með beitingu lyfsins Alphamax (Deltamethrin) í Hvestu í Arnarfirði og var mælt með samþykkt umsóknar um beitingu Salmosan (Azamethiphos) á Tjaldanesi, sem er einnig í Arnarfirði.

Hafði áður verið tekin til umfjöllunar umsókn um beitingu lyfja á Tjaldanesi en fiskisjúkdómanefnd lagðist gegn samþykkt hennar. Þá segir í fundargerð frá 17. maí: „Að mati nefndarinnar er sjúkdómsstaða eldisfisks á umræddu eldissvæði ekki þannig vaxin að ástæða sé til lyfjameðhöndlunar að sinni. Nefndin leggur áherslu á að áfram verði fylgst með fjölda sníkjudýra á eldissvæðinu með vikulegum talningum og gripið verði til viðeigandi ráðstafana ef svo ber undir.“

Ekkert birt um lús frá desember

Tekið var í notkun mælaborð fiskeldis á vef Matvælastofnunar (MAST) í apríl 2021. Mælaborðinu var ætlað að geyma allar helstu upplýsingar um eldi hér á landi, hvort sem um er að ræða í sjó eða á landi. Markmiðið var að auka gagnsæi með því að birta upplýsingarnar á einum stað.

Þessi birting tryggir um leið heildstæðari yfirsýn yfir stöðu og þróun greinarinnar, sem er mikilvægt fyrir alla hlutaðeigandi,“ var haft eftir Kristjáni Þór Júlíussyni, þáverandi sjávarútvegsráðherra, við opnun mælaborðsins.

Eitt þeirra atriða sem þar hefur átt að birta hefur verið útbreiðsla laxalúsa á fiskum í sjókvíum við Íslandsstrendur. Hefur verið birt meðaltal kvenlúsa á fiski í hverjum mánuði allt frá janúar 2020. Alla jafna hefur lús ekki verið talin mánuðina febrúar til apríl þar sem hún á erfitt til uppdráttar í köldum sjó yfir vetrarmánuðina, en frá desember 2022 hafa engar upplýsingar um þróun lúsasmits verið birtar í mælaborðinu.

Mikil fjölgun laxalúsa átti sér stað í Dýrafirði haustið 2022 en var talin innan marka þar sem til stóð að slátra þeim fiski sem var að finna í kvíunum. Í desember voru taldar 9,22 kvenlýs á hverjum fiski í firðinum, en aldrei hafa verið taldar fleiri lýs á fiski í íslensku laxeldi, svo vitað sé.

mbl.is
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 28.9.23 568,67 kr/kg
Þorskur, slægður 28.9.23 446,59 kr/kg
Ýsa, óslægð 28.9.23 272,36 kr/kg
Ýsa, slægð 28.9.23 273,11 kr/kg
Ufsi, óslægður 28.9.23 261,25 kr/kg
Ufsi, slægður 28.9.23 238,90 kr/kg
Djúpkarfi 21.9.23 301,00 kr/kg
Gullkarfi 28.9.23 298,06 kr/kg
Litli karfi 21.9.23 13,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 25.9.23 139,79 kr/kg

Fleiri tegundir »

28.9.23 Straumey EA 50 Línutrekt
Þorskur 3.563 kg
Ýsa 817 kg
Steinbítur 34 kg
Samtals 4.414 kg
28.9.23 Indriði Kristins BA 751 Lína
Ýsa 604 kg
Steinbítur 39 kg
Þorskur 5 kg
Skarkoli 3 kg
Samtals 651 kg
28.9.23 Hafborg EA 152 Dragnót
Þorskur 4.983 kg
Ýsa 2.602 kg
Karfi 533 kg
Skarkoli 353 kg
Ufsi 36 kg
Steinbítur 17 kg
Langlúra 17 kg
Hlýri 15 kg
Þykkvalúra 6 kg
Samtals 8.562 kg

Skoða allar landanir »

Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 28.9.23 568,67 kr/kg
Þorskur, slægður 28.9.23 446,59 kr/kg
Ýsa, óslægð 28.9.23 272,36 kr/kg
Ýsa, slægð 28.9.23 273,11 kr/kg
Ufsi, óslægður 28.9.23 261,25 kr/kg
Ufsi, slægður 28.9.23 238,90 kr/kg
Djúpkarfi 21.9.23 301,00 kr/kg
Gullkarfi 28.9.23 298,06 kr/kg
Litli karfi 21.9.23 13,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 25.9.23 139,79 kr/kg

Fleiri tegundir »

28.9.23 Straumey EA 50 Línutrekt
Þorskur 3.563 kg
Ýsa 817 kg
Steinbítur 34 kg
Samtals 4.414 kg
28.9.23 Indriði Kristins BA 751 Lína
Ýsa 604 kg
Steinbítur 39 kg
Þorskur 5 kg
Skarkoli 3 kg
Samtals 651 kg
28.9.23 Hafborg EA 152 Dragnót
Þorskur 4.983 kg
Ýsa 2.602 kg
Karfi 533 kg
Skarkoli 353 kg
Ufsi 36 kg
Steinbítur 17 kg
Langlúra 17 kg
Hlýri 15 kg
Þykkvalúra 6 kg
Samtals 8.562 kg

Skoða allar landanir »