Formenn stjórnarflokkanna tókust á um ákvörðunar matvælaráðherra að banna tímabundið veiðar á langreyðum í morgun. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, lýstu óánægju með það hvernig var staðið að ákvörðuninni.
Í morgun var greint frá því að niðurstöður lögfræðiálits sem Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi lét vinna kveða á um að ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra hafi farið í bága við lög.
Í pallborði á Vísi í morgun sagðist Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, styðja ákvörðun Svandísar, flokksystur sinnar.
Hún benti á að ákvörðun Svandísar byggði á áliti fagráðs og væri því rétt ákvörðun.
Katrín sagði, „nánast ómögulegt að bregðast ekki við.“
Sigurður Ingi og Bjarni lýstu yfir vonbrigðum sínum með ákvörðunina.
Bjarni sagði að málið hafi komið honum á óvart og að hann hafi ekki enn rætt við Svandísi um ákvörðunina.
Sagði óljóst að meðhólf stjórnsýslu hafi ekki verið gætt með að taka ákvörðunina degi fyrir að veiði átt að hefjast.
Sigurður Ingi og Bjarni voru sammála um að þingið hefði átt að ræða ákvörðunina áður en hún var tekin.
Þá sagðist Sigurður Ingi hafa viljað að skipaður hefði verið hópur til að fjalla um álit fagráðsins.
Bjarni sagði að þingflokkur Sjálfstæðisflokksins hafi rætt málið, síðast í gær, og að endurskoða ætti bannið. Hann vildi ekki svara hvort ákvörðunin hefði áhrif á stjórnarsamstarfið en hann sagðist ósáttur við ákvörðunina.
Katrín nefndi að þau væru oft ósátt við hvort annað og að þau hefðu hingað til alltaf leyst þau mál.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 16.9.24 | 486,57 kr/kg |
Þorskur, slægður | 15.9.24 | 392,69 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 15.9.24 | 253,66 kr/kg |
Ýsa, slægð | 15.9.24 | 226,78 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 15.9.24 | 254,58 kr/kg |
Ufsi, slægður | 15.9.24 | 255,57 kr/kg |
Djúpkarfi | 12.9.24 | 378,00 kr/kg |
Gullkarfi | 15.9.24 | 273,03 kr/kg |
Litli karfi | 10.9.24 | 10,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 15.9.24 | 268,00 kr/kg |
16.9.24 Dýri II BA 99 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 931 kg |
Samtals | 931 kg |
16.9.24 Fjóla SH 7 Plógur | |
---|---|
Ígulker Bf B | 412 kg |
Samtals | 412 kg |
16.9.24 Guðmundur Þór NS 121 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 705 kg |
Ufsi | 108 kg |
Samtals | 813 kg |
16.9.24 Sæþór EA 101 Þorskfisknet | |
---|---|
Þorskur | 2.711 kg |
Ýsa | 266 kg |
Skarkoli | 25 kg |
Samtals | 3.002 kg |
16.9.24 Glær KÓ 9 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 1.442 kg |
Ufsi | 68 kg |
Karfi | 5 kg |
Samtals | 1.515 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 16.9.24 | 486,57 kr/kg |
Þorskur, slægður | 15.9.24 | 392,69 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 15.9.24 | 253,66 kr/kg |
Ýsa, slægð | 15.9.24 | 226,78 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 15.9.24 | 254,58 kr/kg |
Ufsi, slægður | 15.9.24 | 255,57 kr/kg |
Djúpkarfi | 12.9.24 | 378,00 kr/kg |
Gullkarfi | 15.9.24 | 273,03 kr/kg |
Litli karfi | 10.9.24 | 10,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 15.9.24 | 268,00 kr/kg |
16.9.24 Dýri II BA 99 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 931 kg |
Samtals | 931 kg |
16.9.24 Fjóla SH 7 Plógur | |
---|---|
Ígulker Bf B | 412 kg |
Samtals | 412 kg |
16.9.24 Guðmundur Þór NS 121 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 705 kg |
Ufsi | 108 kg |
Samtals | 813 kg |
16.9.24 Sæþór EA 101 Þorskfisknet | |
---|---|
Þorskur | 2.711 kg |
Ýsa | 266 kg |
Skarkoli | 25 kg |
Samtals | 3.002 kg |
16.9.24 Glær KÓ 9 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 1.442 kg |
Ufsi | 68 kg |
Karfi | 5 kg |
Samtals | 1.515 kg |