„Mega ekki misfara með sínar heimildir“

Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims.
Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims. Ljósmynd/Aðsend

Dagsektir Samkeppniseftirlitsins (SKE) á sjávarútvegsfyrirtækið Brim hf. eru ólöglegar og felldi áfrýjunarnefnd samkeppnismála þær úr gildi með mjög afdráttarlausum úrskurði í gær.

Verður að virða lög til að halda trúverðugleika

Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, fagnaði úrskurði áfrýjunarnefdar samkeppnismála í samtali við Morgunblaðið í gær en segir hann umhugsunarverðan.

„Samkeppniseftirlitið verður að virða lög til að halda trúverðugleika í þjóðfélaginu. Fólkið og fyrirtækin í landinu verða að geta treyst eftirlitsstofnunum, þær hafa mikil völd og mega ekki misfara með sínar heimildir.“

SKE ákvað í júlí að beita Brim 3,5 milljóna króna dagsektum – hæstu dagsektum í sögu eftirlitsins – til að knýja á um að útgerðin afhenti allar umbeðnar upplýsingar í tengslum við athugun þess á sjávarútvegsfyrirtækjum.

Hún var gerð samkvæmt samningi við Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra, ætluð til pólitískrar stefnumótunar í sjávarútvegi, nefnd Auðlindin okkar.

Sjálfstæði SKE í uppnámi

Áfrýjunarnefndin kemst að þeirri niðurstöðu að lagaheimildir SKE til beitingar dagsekta hrökkvi ekki til. Þær séu veittar til að unnt sé að beita þvingunaraðgerðum í samkeppnisbrotamálum, en ekki vegna verkefna fyrir aðra.

Áfrýjunarnefndin segir að samningurinn við matvælaráðherra hafi yfirbragð verktakasamnings, en fyrir slíkri verktöku sé ekki gert ráð í samkeppnislögum. Verktaka af því tagi gegn greiðslu „samræmist ekki því hlutverki Samkeppniseftirlitsins, sem því er fengið í samkeppnislögum, sem sjálfstæðs stjórnvalds,“ segir í úrskurðinum.

„Þaðan af síður [verður] talið að Samkeppniseftirlitið hafi heimild til að beita valdheimildum sínum og þvingunarúrræðum eins og dagsektum til að knýja á um afhendingu gagna vegna slíkra athugana og skýrsluskrifa.“

Ekki náðist í Pál Gunnar Pálsson, forstjóra SKE, eða Ásgeir Einarsson aðstoðarforstjóra við vinnslu fréttarinnar, en Sveinn Agnarsson, formaður stjórnar SKE, baðst undan viðtali.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 4.12.23 476,11 kr/kg
Þorskur, slægður 4.12.23 435,60 kr/kg
Ýsa, óslægð 4.12.23 237,59 kr/kg
Ýsa, slægð 4.12.23 200,67 kr/kg
Ufsi, óslægður 4.12.23 242,95 kr/kg
Ufsi, slægður 4.12.23 246,34 kr/kg
Djúpkarfi 20.10.23 253,00 kr/kg
Gullkarfi 4.12.23 228,70 kr/kg
Litli karfi 16.11.23 10,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 4.12.23 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

4.12.23 Straumey EA 50 Línutrekt
Þorskur 2.342 kg
Ýsa 961 kg
Samtals 3.303 kg
4.12.23 Hlökk ST 66 Landbeitt lína
Þorskur 7.261 kg
Ýsa 3.212 kg
Karfi 10 kg
Samtals 10.483 kg
4.12.23 Fanney EA 48 Landbeitt lína
Ýsa 1.030 kg
Þorskur 936 kg
Samtals 1.966 kg
4.12.23 Glettingur NS 100 Landbeitt lína
Þorskur 5.066 kg
Ýsa 1.714 kg
Keila 176 kg
Hlýri 24 kg
Karfi 16 kg
Steinbítur 1 kg
Samtals 6.997 kg

Skoða allar landanir »

Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 4.12.23 476,11 kr/kg
Þorskur, slægður 4.12.23 435,60 kr/kg
Ýsa, óslægð 4.12.23 237,59 kr/kg
Ýsa, slægð 4.12.23 200,67 kr/kg
Ufsi, óslægður 4.12.23 242,95 kr/kg
Ufsi, slægður 4.12.23 246,34 kr/kg
Djúpkarfi 20.10.23 253,00 kr/kg
Gullkarfi 4.12.23 228,70 kr/kg
Litli karfi 16.11.23 10,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 4.12.23 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

4.12.23 Straumey EA 50 Línutrekt
Þorskur 2.342 kg
Ýsa 961 kg
Samtals 3.303 kg
4.12.23 Hlökk ST 66 Landbeitt lína
Þorskur 7.261 kg
Ýsa 3.212 kg
Karfi 10 kg
Samtals 10.483 kg
4.12.23 Fanney EA 48 Landbeitt lína
Ýsa 1.030 kg
Þorskur 936 kg
Samtals 1.966 kg
4.12.23 Glettingur NS 100 Landbeitt lína
Þorskur 5.066 kg
Ýsa 1.714 kg
Keila 176 kg
Hlýri 24 kg
Karfi 16 kg
Steinbítur 1 kg
Samtals 6.997 kg

Skoða allar landanir »