Sjö bátum var í dag siglt úr smábátahöfninni í Grindavík. Allir togarar og línubátar eru farnir úr höfninni en um 10 strandveiðibátar eru enn eftir og er beðið eftir betri veðurskilyrðum til að sigla þeim út úr höfninni.
Þetta segir Sigurður A. Kristmundsson hafnarstjóri Grindavíkurhafnar í samtali við mbl.is.
Landhelgisgæslan stýrði þessum aðgerðum í samvinnu við höfnina og ákveðið var að hleypa af stað þeim sem treystu sér til vegna ölduhæðar.
„Það er alveg á mörkunum hvort að ölduhæðin leyfi þeim allra minnstu að fara og það voru sumir sem ákváðu að fara ekki,“ segir hann en bætir við að „stærri gerðin“ af smábátunum hafi farið í dag, þar á meðal hafnsögubátur Grindavíkur.
Bátarnir fóru í Sandgerðishöfn í Suðurnesjabæ og fylgdi varðskipið Þór þeim eftir. Sigurður gerir ráð fyrir því að bátarnir sem enn eru í Grindavík verði færðir um leið og veðurskilyrði batna.
Hafnarstjórinn á hús eins og aðrir Grindvíkingar og er mbl.is náði af honum tali voru hann og konan hans nýbúin að rýma helstu nauðsynjar úr húsinu sínu.
Hann segir að þau hafi troðfyllt bílinn sinn af helstu nauðsynjum, sérstaklega fötum til skiptanna. Blessunarlega hafi húsið enn verið í fínu lagi.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 28.11.23 | 445,79 kr/kg |
Þorskur, slægður | 28.11.23 | 480,71 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 28.11.23 | 219,54 kr/kg |
Ýsa, slægð | 28.11.23 | 227,78 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 28.11.23 | 196,67 kr/kg |
Ufsi, slægður | 28.11.23 | 277,29 kr/kg |
Djúpkarfi | 20.10.23 | 253,00 kr/kg |
Gullkarfi | 28.11.23 | 251,38 kr/kg |
Litli karfi | 16.11.23 | 10,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 28.11.23 | 217,88 kr/kg |
28.11.23 Vigur SF 80 Lína | |
---|---|
Ýsa | 2.512 kg |
Þorskur | 519 kg |
Langa | 340 kg |
Keila | 52 kg |
Samtals | 3.423 kg |
28.11.23 Dagrún HU 121 Þorskfisknet | |
---|---|
Þorskur | 539 kg |
Samtals | 539 kg |
28.11.23 Agnar BA 125 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 512 kg |
Samtals | 512 kg |
28.11.23 Öðlingur SU 19 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 11.724 kg |
Ýsa | 1.996 kg |
Langa | 38 kg |
Ufsi | 28 kg |
Samtals | 13.786 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 28.11.23 | 445,79 kr/kg |
Þorskur, slægður | 28.11.23 | 480,71 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 28.11.23 | 219,54 kr/kg |
Ýsa, slægð | 28.11.23 | 227,78 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 28.11.23 | 196,67 kr/kg |
Ufsi, slægður | 28.11.23 | 277,29 kr/kg |
Djúpkarfi | 20.10.23 | 253,00 kr/kg |
Gullkarfi | 28.11.23 | 251,38 kr/kg |
Litli karfi | 16.11.23 | 10,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 28.11.23 | 217,88 kr/kg |
28.11.23 Vigur SF 80 Lína | |
---|---|
Ýsa | 2.512 kg |
Þorskur | 519 kg |
Langa | 340 kg |
Keila | 52 kg |
Samtals | 3.423 kg |
28.11.23 Dagrún HU 121 Þorskfisknet | |
---|---|
Þorskur | 539 kg |
Samtals | 539 kg |
28.11.23 Agnar BA 125 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 512 kg |
Samtals | 512 kg |
28.11.23 Öðlingur SU 19 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 11.724 kg |
Ýsa | 1.996 kg |
Langa | 38 kg |
Ufsi | 28 kg |
Samtals | 13.786 kg |