„Aðstæður Grindvíkinga ganga fyrir“

„Hugur okkar allra er hjá Grindvíkingum og ástvinum þeirra – …
„Hugur okkar allra er hjá Grindvíkingum og ástvinum þeirra – þeirra aðstæður ganga fyrir,“ skrifar Guðmundur Helgi Þórarinsson, formaður VM. Orlofshús félagsins verða í boði fyrir Grindvíkinga sem yfirgefið hafa heimili sín. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Félags vélstjóra og málmtæknimanna hefur unnið að því í samráði við almannavarnir að taka frá orlofseignir stéttarfélagsins fyrir Grindvíkinga sem hafa þurft að yfirgefa heimili sín. Frá þessu greinir Guðmundur Helgi Þórarinsson, formaður, í pistli á vef VM.

„Skelfilegt er að fylgjast með þeim hamförum sem nú eiga sér stað í Grindavík og nágrenni. Erfitt er að setja sig í spor Grindvíkinga og máta sig við þær raunir sem við þeim blasa. Afar þungbært er að þurfa að yfirgefa heimili sín við þessar aðstæður og horfa upp á þá eyðileggingu sem orðið hefur. Óvissan um framtíðina er nagandi,“ skrifar hann.

Er VM meðal fleiri stéttarfélaga sem hafa ákveðið að bjóða fram sín orlofshús undir þá Grindvíkinga sem skorti dvalarstað vegna hættuástandsins sem myndast hefur í Grindavík í tengslum við mögulegt eldgos.

Biður um skilning og umburðarlyndi

„Óvíst er með öllu hvenær jarðhræringum á þessu svæði lýkur og neyðarstigi verður aflétt. Það gæti tekið vikur eða mánuði. Þannig er alls óljóst hversu lengi Grindvíkingar þurfa á orlofseignum félagsins að halda. Við förum þess á leit við félagsmenn að þeir sýni þessu ástandi skilning og umburðarlyndi,“ skrifar Guðmundur Helgi.

Félagsmenn VM sem hafa átt bókuð orlofshús á næstunni geta því átt von á afbókunum og verður ekki hægt að bóka hús.

„Hugur okkar allra er hjá Grindvíkingum og ástvinum þeirra – þeirra aðstæður ganga fyrir,“ segir í pistlinum.

Grindvíkingar hafa þurft að yfirgefa heimili sín.
Grindvíkingar hafa þurft að yfirgefa heimili sín. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 30.11.23 429,47 kr/kg
Þorskur, slægður 30.11.23 423,46 kr/kg
Ýsa, óslægð 29.11.23 197,87 kr/kg
Ýsa, slægð 29.11.23 180,52 kr/kg
Ufsi, óslægður 29.11.23 174,16 kr/kg
Ufsi, slægður 29.11.23 196,52 kr/kg
Djúpkarfi 20.10.23 253,00 kr/kg
Gullkarfi 29.11.23 216,69 kr/kg
Litli karfi 16.11.23 10,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 29.11.23 219,31 kr/kg

Fleiri tegundir »

30.11.23 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 775 kg
Ufsi 601 kg
Karfi 58 kg
Samtals 1.434 kg
30.11.23 Jóhanna Gísladóttir GK 357 Botnvarpa
Karfi 20.061 kg
Samtals 20.061 kg
30.11.23 Frár VE 78 Botnvarpa
Þorskur 22.204 kg
Ufsi 1.355 kg
Ýsa 857 kg
Langa 662 kg
Skötuselur 656 kg
Karfi 243 kg
Skarkoli 206 kg
Samtals 26.183 kg
30.11.23 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Ýsa 1.512 kg
Þorskur 725 kg
Keila 67 kg
Steinbítur 27 kg
Ufsi 7 kg
Samtals 2.338 kg

Skoða allar landanir »

Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 30.11.23 429,47 kr/kg
Þorskur, slægður 30.11.23 423,46 kr/kg
Ýsa, óslægð 29.11.23 197,87 kr/kg
Ýsa, slægð 29.11.23 180,52 kr/kg
Ufsi, óslægður 29.11.23 174,16 kr/kg
Ufsi, slægður 29.11.23 196,52 kr/kg
Djúpkarfi 20.10.23 253,00 kr/kg
Gullkarfi 29.11.23 216,69 kr/kg
Litli karfi 16.11.23 10,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 29.11.23 219,31 kr/kg

Fleiri tegundir »

30.11.23 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 775 kg
Ufsi 601 kg
Karfi 58 kg
Samtals 1.434 kg
30.11.23 Jóhanna Gísladóttir GK 357 Botnvarpa
Karfi 20.061 kg
Samtals 20.061 kg
30.11.23 Frár VE 78 Botnvarpa
Þorskur 22.204 kg
Ufsi 1.355 kg
Ýsa 857 kg
Langa 662 kg
Skötuselur 656 kg
Karfi 243 kg
Skarkoli 206 kg
Samtals 26.183 kg
30.11.23 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Ýsa 1.512 kg
Þorskur 725 kg
Keila 67 kg
Steinbítur 27 kg
Ufsi 7 kg
Samtals 2.338 kg

Skoða allar landanir »