Samtökin Hvalavinir hafa trú á að Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra muni stöðva hvalveiðar í eitt skipti fyrir öll.
Þetta kemur fram í umsögn Hvalavina við umsókn um leyfi til veiða á langreyðum.
Í umsögninni segir að niðurstaða fagráðs um dýravelferð frá því í fyrra, um að ekki væri hægt að tryggja mannúðlega aflífun stórhvela, enn standa. Svandís Svavarsdóttir fyrrverandi matvælaráðherra byggði ákvörðun sína á þeirri niðurstöðu en Umboðsmaður Alþingis sló á fingur hennar í áliti sínu.
Leiddi þetta til þess að Svandís lét af embætti og tók við innviðaráðuneytinu.
Ráðherra fái heimild til að grípa inn í
„Við í Hvalavinum ásamt öðrum dýra- og náttúruverndarsamtökum höfum sent frá okkur yfirlýsingu þar sem við biðlum til þingsins að breyta lögum svo ráðherra hafi heimild til að grípa til viðeigandi ráðstafana komi í ljós að veiðarnar fara í bága við lög um velferð dýra,“ segir í umsögninni.
„Við sáum það í baráttu okkar síðastliðið sumar að aldrei hefur áður verið jafn mikil athygli á hvalveiðum íslendinga og hafa nú yfir 600.000 manns skrifað undir undirskriftalista okkar og hvatt íslensk stjórnvöld til að hætta hvalveiðum,“ kemur jafnframt fram.
Vísa samtökin til stuðnings að um 100 leikstjórar og leikarar hvaðanæva úr heiminum skrifuðu bréf og hétu að þau myndu sniðganga Ísland og ekki koma með verkefni til landsins nema ef hvalveiðum væri látið af.
„Það er ekki lengur í boði árið 2024 að ráðherrar taki afdrifaríkar ákvarðanir fyrir land og þjóð til að þóknast einum manni sem vill svo til að sé félagi þeirra og einn ríkasti maður landsins, við eigum að vera yfir slíka frændhygli hafin,“ segir að lokum í umsögninni.