Myndband: Óttuðust að bátinn ræki í fjöruna

Slysavarnafélaginu Landsbjörg barst útkall rétt fyrir klukkan fjögur í nótt vegna strandveiðibáts sem óttast var að ræki upp í fjöru á Suðurnesjum.

Það var áhöfnin á björgunarskipinu Hannesi Þ. Hafstein frá Sandgerði sem brást við útkallinu auk þess sem mannskapur var til taks í landi ef bátinn myndi reka í fjöruna. Þetta segir Jón Þór Víglundsson upplýsingafulltrúi Landsbjargar í samtali við mbl.is.

Nærtækur strandveiðibátur kom umræddum strandveiðibát til aðstoðar og þar með …
Nærtækur strandveiðibátur kom umræddum strandveiðibát til aðstoðar og þar með í veg fyrir að hann ræki alveg upp í fjöruna. Ljósmynd/Áhöfnin á Hannesi Þ. Hafstein

Fór betur á en horfðist

Það fór þó betur en á horfðist því nærtækur strandveiðibátur gat sett spotta í strandveiðibátinn sem óskaði aðstoðar og komið þar með í veg fyrir að hann ræki alveg upp í fjöruna.

Aðgerðin gekk því mjög vel og var strandveiðibáturinn kominn í tog hjá Hannesi Þ. Hafstein um klukkutíma eftir að útkallið barst, að sögn Jón Þórs, og var þá siglt með hann til hafnar í Sandgerði.

Auk björgunarskipsins og þeirra sem voru til taks í landi var þyrla landhelgisgæslunnar kölluð út og var hún til taks á meðan á aðgerðinni stóð.

Strandveiðibáturinn var kominn í tog um klukkustund eftir að útkallið …
Strandveiðibáturinn var kominn í tog um klukkustund eftir að útkallið barst. Ljósmynd/Áhöfnin á Hannesi Þ. Hafstein
Betur fór en á horfðist og gekk aðgerðin vel.
Betur fór en á horfðist og gekk aðgerðin vel. Ljósmynd/Áhöfnin á Hannesi Þ. Hafstein
Siglt var með strandveiðibátinn til hafnar í Sandgerði.
Siglt var með strandveiðibátinn til hafnar í Sandgerði. Ljósmynd/Áhöfnin á Hannesi Þ. Hafstein
mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 21.5.25 487,94 kr/kg
Þorskur, slægður 21.5.25 604,38 kr/kg
Ýsa, óslægð 21.5.25 392,23 kr/kg
Ýsa, slægð 21.5.25 398,19 kr/kg
Ufsi, óslægður 21.5.25 195,16 kr/kg
Ufsi, slægður 21.5.25 259,43 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 23.4.25 20,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 21.5.25 247,38 kr/kg
Litli karfi 13.5.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

21.5.25 Freyja II RE 69 Handfæri
Þorskur 125 kg
Ufsi 15 kg
Samtals 140 kg
21.5.25 Ásdís ÓF 9 Handfæri
Þorskur 781 kg
Samtals 781 kg
21.5.25 Óskar HF 9 Handfæri
Þorskur 401 kg
Ufsi 16 kg
Samtals 417 kg
21.5.25 Dögg SF 18 Handfæri
Þorskur 816 kg
Ufsi 671 kg
Samtals 1.487 kg
21.5.25 Fönix BA 17 Handfæri
Þorskur 899 kg
Samtals 899 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 21.5.25 487,94 kr/kg
Þorskur, slægður 21.5.25 604,38 kr/kg
Ýsa, óslægð 21.5.25 392,23 kr/kg
Ýsa, slægð 21.5.25 398,19 kr/kg
Ufsi, óslægður 21.5.25 195,16 kr/kg
Ufsi, slægður 21.5.25 259,43 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 23.4.25 20,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 21.5.25 247,38 kr/kg
Litli karfi 13.5.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

21.5.25 Freyja II RE 69 Handfæri
Þorskur 125 kg
Ufsi 15 kg
Samtals 140 kg
21.5.25 Ásdís ÓF 9 Handfæri
Þorskur 781 kg
Samtals 781 kg
21.5.25 Óskar HF 9 Handfæri
Þorskur 401 kg
Ufsi 16 kg
Samtals 417 kg
21.5.25 Dögg SF 18 Handfæri
Þorskur 816 kg
Ufsi 671 kg
Samtals 1.487 kg
21.5.25 Fönix BA 17 Handfæri
Þorskur 899 kg
Samtals 899 kg

Skoða allar landanir »