„Þessi niðurstaða er bara grín“

Longdawn flutningaskipið og Arthur Bogason, formaður Landssambands smábátaeigenda.
Longdawn flutningaskipið og Arthur Bogason, formaður Landssambands smábátaeigenda. Samsett mynd

„Mér satt að segja brá nú í brún þegar ég sá þessa niðurstöðu,“ segir Arthur Bogason, formaður Landssambands smábátaeigenda, um niðurstöðu dóms í máli er varðar árekst­ur flutn­inga­skips­ins Longdawn og strand­veiðibáts­ins Höddu.

Dæmdir í 12 og 8 mánaða skilorðsbundið fangelsi

Bátinn Höddu hvolfdi 16. maí eftir árekstur, en rann­sókn­ir á sigl­inga­gögn­um þóttu gefa til kynna að skipið Longdawn hefði rek­ist á bát­inn með fyrrgreindum afleiðingum.

Skipstjóri Longdawn gaf 2. stýrimanni skipsins fyrirmæli um að halda áfram, þrátt fyrir að stýrimaðurinn hafi upplýst skipstjórann um áreksturinn og að hann teldi sig hafa séð Höddu vera að sökkva.

Skip­stjórinn var dæmd­ur í 12 mánaða skil­orðsbundið fang­elsi og var sviptur siglingaréttindum í þrjá mánuði. Stýri­maðurinn var dæmd­ur í 8 mánaða skil­orðsbundið fang­elsi. 

Skipstjórinn og stýrimaðurinn játuðu báðir sök í málinu.
Skipstjórinn og stýrimaðurinn játuðu báðir sök í málinu. mbl.is/Eyþór

Orðlaus þegar hann sá niðurstöðuna

„Ég hefði haldið að þetta yrði metið til mun meiri refsingar heldur en raun ber vitni,“ segir Arthur.

Hann segist hafa orðið orðlaus þegar hann hafi séð dómsniðurstöðuna, af því að hann hafi átt von á því að þetta yrði metið miklu þyngra.

„Eins og þetta lítur út fyrir mér þá vita þeir að maðurinn er í sjónum og vita að báturinn er að sökkva og skipstjórinn tekur ákvörðun um það og greinilega með samþykki stýrimannsins að láta þetta eiga sig,“ segir hann. 

Segir málið grafalvarlegt

„Ég hefði haldið að þetta væri tilraun til manndráps,“ segir Arthur.

Hann segir málið grafalvarlegt. „Ég hef talað um þetta við vini mína og það er nákvæmlega sama hljóðið í þeim, þeir skilja ekkert í þessu,“ segir hann.

„Þessi niðurstaða er bara grín,“ segir Arthur.

Ekki óþekkt að smábátar séu sigldir niður

Hann segir það síður en svo óþekkt í heiminum að smábátar séu sigldir niður af mjög stórum skipum og að það gerist á hverju einasta ári í einhverju mæli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.5.25 399,85 kr/kg
Þorskur, slægður 23.5.25 620,81 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.5.25 395,89 kr/kg
Ýsa, slægð 23.5.25 403,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.5.25 148,18 kr/kg
Ufsi, slægður 23.5.25 237,77 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 23.4.25 20,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 23.5.25 172,33 kr/kg
Litli karfi 22.5.25 11,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.5.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 9.856 kg
Steinbítur 993 kg
Ýsa 977 kg
Langa 302 kg
Ufsi 211 kg
Keila 58 kg
Skarkoli 52 kg
Hlýri 44 kg
Samtals 12.493 kg
23.5.25 Már ÍS 440 Sjóstöng
Þorskur 94 kg
Samtals 94 kg
23.5.25 Lundi ÍS 406 Sjóstöng
Steinbítur 482 kg
Þorskur 93 kg
Ýsa 14 kg
Samtals 589 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.5.25 399,85 kr/kg
Þorskur, slægður 23.5.25 620,81 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.5.25 395,89 kr/kg
Ýsa, slægð 23.5.25 403,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.5.25 148,18 kr/kg
Ufsi, slægður 23.5.25 237,77 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 23.4.25 20,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 23.5.25 172,33 kr/kg
Litli karfi 22.5.25 11,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.5.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 9.856 kg
Steinbítur 993 kg
Ýsa 977 kg
Langa 302 kg
Ufsi 211 kg
Keila 58 kg
Skarkoli 52 kg
Hlýri 44 kg
Samtals 12.493 kg
23.5.25 Már ÍS 440 Sjóstöng
Þorskur 94 kg
Samtals 94 kg
23.5.25 Lundi ÍS 406 Sjóstöng
Steinbítur 482 kg
Þorskur 93 kg
Ýsa 14 kg
Samtals 589 kg

Skoða allar landanir »