Fínasta veður á síldarmiðunum

Beitir NK var mættur á miðin í gær.
Beitir NK var mættur á miðin í gær. Ljósmynd/Síldarvinnslan: Helgi Freyr Ólason

Veiðar á íslenskri sumargotssíld eru hafnar vestur af landinu, að þvi er segir í færslu á vef Síldarvinnslunnar. Þar er greint frá því að Beitir NK sé kominn á miðin við Kolluál en var ekki búinn að kasta í gær er rætt var við Sigurð Valgeir Jóhannesson skipstjóra.

Sagði hann að beðið yrði með að hefja veiðar þar sem þyrfti að skipuleggja þær með tilliti til vinnslunnar í landi og þarf aflinn að vera eins ferskur og kostur er þegar hann er landaður til vinnslu í fiskiðjuverinu í Neskaupstað.

„Vilhelm Þorsteinsson EA, sem einnig landar í Neskaupstað, hefur hafið veiðar og var með 370 tonn sl. nótt. Það eru fleiri skip á miðunum. Gullbergið fékk 110 tonn í gærkvöldi og það eru einhver skip að hífa einmitt núna. Fínasta veður er á miðunum í þessum töluðu orðum. Það gæti þó kaldað í kvöld og nótt en það ætti að vera skammvinnt. Hér er um að ræða hreina íslenska sumargotssíld en hún hefur að undanförnu verið veidd í nokkrum mæli austur af landinu í bland við norsk – íslensku síldina. Það er býsna langt austur frá miðunum hérna, eða yfir 30 tíma sigling og það skiptir nánast engu máli hvort farið er suður fyrir eða norður fyrir landið hvað siglingatíma varðar,” segir Sigurður Valgeir í færslunni.

Kvótinn í íslenskri sumargotssíld fiskveiðiárið 2024/2025 nemur 83 þúsund tonnum og hefur íslenski flotinn þegar landað rúmlega 17 þúsund tonnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 9.7.25 487,32 kr/kg
Þorskur, slægður 9.7.25 504,21 kr/kg
Ýsa, óslægð 9.7.25 438,34 kr/kg
Ýsa, slægð 9.7.25 392,00 kr/kg
Ufsi, óslægður 9.7.25 191,44 kr/kg
Ufsi, slægður 9.7.25 163,20 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.5.25 99,00 kr/kg
Djúpkarfi 16.6.25 30,00 kr/kg
Gullkarfi 9.7.25 268,22 kr/kg
Litli karfi 7.7.25 11,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

9.7.25 Ásdís EA 89 Handfæri
Þorskur 566 kg
Ufsi 54 kg
Karfi 25 kg
Samtals 645 kg
9.7.25 Sólin RE 4 Handfæri
Þorskur 234 kg
Ufsi 6 kg
Samtals 240 kg
9.7.25 Víkin EA 717 Handfæri
Þorskur 753 kg
Ufsi 160 kg
Karfi 1 kg
Samtals 914 kg
9.7.25 Edda SI 200 Handfæri
Þorskur 808 kg
Ufsi 63 kg
Karfi 12 kg
Samtals 883 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 9.7.25 487,32 kr/kg
Þorskur, slægður 9.7.25 504,21 kr/kg
Ýsa, óslægð 9.7.25 438,34 kr/kg
Ýsa, slægð 9.7.25 392,00 kr/kg
Ufsi, óslægður 9.7.25 191,44 kr/kg
Ufsi, slægður 9.7.25 163,20 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.5.25 99,00 kr/kg
Djúpkarfi 16.6.25 30,00 kr/kg
Gullkarfi 9.7.25 268,22 kr/kg
Litli karfi 7.7.25 11,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

9.7.25 Ásdís EA 89 Handfæri
Þorskur 566 kg
Ufsi 54 kg
Karfi 25 kg
Samtals 645 kg
9.7.25 Sólin RE 4 Handfæri
Þorskur 234 kg
Ufsi 6 kg
Samtals 240 kg
9.7.25 Víkin EA 717 Handfæri
Þorskur 753 kg
Ufsi 160 kg
Karfi 1 kg
Samtals 914 kg
9.7.25 Edda SI 200 Handfæri
Þorskur 808 kg
Ufsi 63 kg
Karfi 12 kg
Samtals 883 kg

Skoða allar landanir »