Leita húsnæðis undir frumkvöðlasetur

Viljayfirlýsingin var undirrituð af Gunnari Tryggvasyni hafnarstjóra, Einari Þorsteinssyni borgarstjóra …
Viljayfirlýsingin var undirrituð af Gunnari Tryggvasyni hafnarstjóra, Einari Þorsteinssyni borgarstjóra og Þór Sigfússyni stofnanda sjávarklasans. Ljósmynd/Faxaflóahafnir

Undirrituð var viljayfirlýsingu í vikunni um að Faxaflóahafnir og Reykjavíkurborg munu greiða götu nýsköpunar- og frumkvöðlaseturs undir heitinu „100% Húsið“ þar sem lögð verður áhersla á haftengda nýsköpun þar sem 100% af hverjum veiddum fiski nýtist til verðmætasköpunar.

Fram kemur í tilkynningu á vef Faxaflóahafna að til standi að skoða hvort húsakostur í eigu þeirra sem henti undir starfsemina eða hvort reist verði nýtt hús við hlið núverandi aðstöðu Sjávarklasans að Grandagarði 16.

„Gerð verður forsögn að nýju deiliskipulagi fyrir nýsköpunarhúsið með hliðsjón af þeim áherslum sem Faxaflóahafnir hafa til metnaðarfullrar atvinnuuppbyggingar,“ segir í tilkynningunni.

Fjöldi fyrirtækja hafa dafnað í samstarfi við Íslenska sjávarklasann.
Fjöldi fyrirtækja hafa dafnað í samstarfi við Íslenska sjávarklasann. mbl.is/Ófeigur

Þar segjast Faxaflóahafnir vilja „leggja sitt af mörkum til nýsköpunar í hafsækinni starfsemi til að hafnirnar á stærsta markaðssvæði landsins geti haldið áfram að þróast í takt við þarfir samfélagsins, atvinnulífsins og umhverfisins – því þannig auka Faxaflóahafnir lífsgæði á Íslandi. Faxaflóahafnir eru þegar aðalbakhjarl frumkvöðlaseturs í Húsi Sjávarklasans, þar sem frumkvöðlar hafa nýtt sér glæsilega aðstöðu og reynst dýrmætur stökkpallur í þeirra þróun.“

Gunnar Tryggvason hafnarstjóri segir það ánægjuefni að fylgjast með vexti Sjávarklasans og árangri fyrirtækjanna sem þar hafa starfað.

„Af þessum sökum höfum við haldið áfram að styrkja þessa starfsemi í okkar húsum og hyggjumst gera áfram. Við höfum verið að leita leiða til að rýmka um fyrir starfsemi hans og annarra fyrirtækja á Grandanum, bæði í sjávarútvegi og ferðaþjónustu en einnig nýsköpun og er þessi viljayfirlýsing áfangi í þeirri vegferð,“ segir Gunnar í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.7.25 467,25 kr/kg
Þorskur, slægður 18.7.25 543,60 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.7.25 331,15 kr/kg
Ýsa, slægð 18.7.25 357,76 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.7.25 214,25 kr/kg
Ufsi, slægður 18.7.25 238,00 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.5.25 99,00 kr/kg
Djúpkarfi 16.6.25 30,00 kr/kg
Gullkarfi 18.7.25 479,85 kr/kg
Litli karfi 7.7.25 11,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.7.25 Bárður SH 81 Dragnót
Þorskur 2.392 kg
Ýsa 1.846 kg
Skarkoli 1.835 kg
Steinbítur 560 kg
Skrápflúra 368 kg
Þykkvalúra 9 kg
Samtals 7.010 kg
19.7.25 Helgi SH 67 Grásleppunet
Grásleppa 678 kg
Samtals 678 kg
19.7.25 Hávella ÍS 426 Sjóstöng
Þorskur 351 kg
Samtals 351 kg
19.7.25 Sendlingur ÍS 415 Sjóstöng
Þorskur 167 kg
Samtals 167 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.7.25 467,25 kr/kg
Þorskur, slægður 18.7.25 543,60 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.7.25 331,15 kr/kg
Ýsa, slægð 18.7.25 357,76 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.7.25 214,25 kr/kg
Ufsi, slægður 18.7.25 238,00 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.5.25 99,00 kr/kg
Djúpkarfi 16.6.25 30,00 kr/kg
Gullkarfi 18.7.25 479,85 kr/kg
Litli karfi 7.7.25 11,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.7.25 Bárður SH 81 Dragnót
Þorskur 2.392 kg
Ýsa 1.846 kg
Skarkoli 1.835 kg
Steinbítur 560 kg
Skrápflúra 368 kg
Þykkvalúra 9 kg
Samtals 7.010 kg
19.7.25 Helgi SH 67 Grásleppunet
Grásleppa 678 kg
Samtals 678 kg
19.7.25 Hávella ÍS 426 Sjóstöng
Þorskur 351 kg
Samtals 351 kg
19.7.25 Sendlingur ÍS 415 Sjóstöng
Þorskur 167 kg
Samtals 167 kg

Skoða allar landanir »