Færeyjar og Rússland hafa gengið frá samningum um fiskveiðar á næsta ári. Verða færeysku skipin fyrir skerðingu bolfiskkvóta í Barentshafi í takti við skerðingar í samræmi við ráðgjöf vísindamanna. Kvóti rússneskra skipa í uppsjávartegundum í færeyskri lögsögu skerðist einnig.
Fram kemur í tilkynningu á vef sjávarútvegs- og samgönguráðuneytis Færeyja (Fiskivinnu- og Samferðslumálaráðið) að skerðing á kvóta til færeyskra skipa verður minni en samdráttur í heildarkvóta í Barentshafi.
Fá færeysk skip að veiða 7.445 tonn af þorski í rússneskri lögsögu Barentshafi árið 2025 og er það 23,8% minni hámarksafi en á þessu ári. Einnig skerðist ýsukvótinn um 4,5% og fá Færeyingar að veiða þúsund tonn af ýsu. Fylgir samningum einnig heimild til veiða á 900 tonn af flatfiski og 4.000 tonn af rækju.
Hingað til hefur aðeins eitt færeyskt skip haft heimild til að sækja rækjur á norðlægstu fiskimiðin í einu, en nú féllust rússnesk yfirvöld á að heimila að tvö skip geta stundað veiðar á þessum slóðum á sama tíma.
Mikil lækkun í makríl
Kolmunnakvóti rússneskra skipa í færeyskri lögsögu fyrir árið 2025 helst óbreyttur frá þessu ári og nemur 75 þúsund tonnum, en makrílkvóti þeirra lækkar um 34,3% í 8.080 tonn auk þess sem kvóti þeirra í norsk-íslenskri síld lækkar um 10,6% í 5.800 tonn.
Þá er rússneskum skipum veitt heimild til að nýta allt að 52.612 tonna af kolmunnakvóta sem skipin hafa á alþjóðlegu hafsvæði innan færeyskrar lögsögu á næsta ári. Minnkar heimildin lítillega milli ára.
Fyrr í vikunni var greint frá því að fulltrúar Grænlands og Færeyja hefðu gengið frá tvíhliða fiskveiðisamningum vegna veiða á næsta ári.