Samkomulag um fjármögnun First Water

Eggert Þór Kristófersson, forstjóri First Water.
Eggert Þór Kristófersson, forstjóri First Water. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Landeldisfyrirtækið First Water hefur náð samkomulagi við Landsbankann og Arion banka um 80 milljón evra fjármögnun, sem samsvarar um 12 milljörðum íslenskra króna.

Í tilkynningu frá First Water, Arion banka og Landsbankanum segir að samkomulagið sé mikilvægur áfangi í uppbyggingu First Water og er með hefðbundnum fyrirvörum. Stefnt er að því að stækka þessa fjármögnun síðar eftir því sem verkefninu vindur fram. First Water vinnur að uppbygginu hágæða matvælaframleiðslu við Laxabraut í Þorlákshöfn.

„Fjármögnun á verkefni af þessari stærðargráðu er eðlilega krefjandi ferli og við getum því ekki verið annað en sátt við þátttöku íslenskra banka í verkefninu. Við erum þakklát Arion banka og Landsbankanum fyrir það traust sem okkur er sýnt og erum spennt fyrir framtíðinni og þeim tækifærum sem vandað laxeldi á landi býður upp á,“ er haft eftir Eggerti Þór Kristóferssyni, forstjóra Firt Water í tilkynningunni.

Eru að byggja 50.000 tonna landeldisstöð

First Water er að byggja 50.000 tonna landeldisstöð við Laxabraut í Þorlákshöfn í 6 fösum og munu rúmlega 300 manns starfa hjá fyrirtækinu árið 2029 en í dag eru starfsmenn um 80, þá mun starfsemi félagsins að auki skapa allt að 300 afleidd störf. Félagið mun einnig byggja fiskvinnsluhús og seiðaeldi á Laxabraut á næstu árum. Laxinn verður alinn í kerjum á landi við kjöraðstæður í hreinum jarðsjó sem er dælt upp í gegnum hraunlög. 

„Það verður mjög spennandi að fylgjast með þeirri uppbyggingu sem fram undan er hjá First Water. Félagið bætist í góðan hóp fiskeldisfélaga sem Arion banki hefur lagt lið á undanförnum árum og mynda nú mikilvæga atvinnugrein, bæði fyrir fjölmörg byggðarlög landsins en einnig fyrir íslenskt efnahagslíf,“ segir Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion Banka.

Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans segist vera ánægð með að geta stutt við spennandi og metnaðarfull áform First Water um sjálfbært landeldi.

„Fyrirtækið hefur nú þegar náð eftirtektarverðum árangri og framtíðaráætlanir þess byggja á traustum og vönduðum undirbúningi. Við teljum allar forsendur til að First Water muni halda áfram að vaxa og dafna,“ segir Lilja.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 5.12.24 540,57 kr/kg
Þorskur, slægður 5.12.24 627,14 kr/kg
Ýsa, óslægð 5.12.24 378,93 kr/kg
Ýsa, slægð 5.12.24 250,26 kr/kg
Ufsi, óslægður 5.12.24 262,69 kr/kg
Ufsi, slægður 5.12.24 227,47 kr/kg
Djúpkarfi 8.11.24 179,00 kr/kg
Gullkarfi 5.12.24 282,18 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 5.12.24 290,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

5.12.24 Vestmannaey VE 54 Botnvarpa
Ýsa 21.200 kg
Þorskur 8.844 kg
Karfi 363 kg
Samtals 30.407 kg
5.12.24 Erling KE 140 Þorskfisknet
Þorskur 14.700 kg
Samtals 14.700 kg
5.12.24 Viktor Sig HU 66 Handfæri
Ufsi 1.263 kg
Þorskur 22 kg
Karfi 4 kg
Samtals 1.289 kg
5.12.24 Grímsey ST 2 Dragnót
Ýsa 2.250 kg
Þorskur 693 kg
Skrápflúra 379 kg
Skarkoli 266 kg
Langlúra 29 kg
Samtals 3.617 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 5.12.24 540,57 kr/kg
Þorskur, slægður 5.12.24 627,14 kr/kg
Ýsa, óslægð 5.12.24 378,93 kr/kg
Ýsa, slægð 5.12.24 250,26 kr/kg
Ufsi, óslægður 5.12.24 262,69 kr/kg
Ufsi, slægður 5.12.24 227,47 kr/kg
Djúpkarfi 8.11.24 179,00 kr/kg
Gullkarfi 5.12.24 282,18 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 5.12.24 290,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

5.12.24 Vestmannaey VE 54 Botnvarpa
Ýsa 21.200 kg
Þorskur 8.844 kg
Karfi 363 kg
Samtals 30.407 kg
5.12.24 Erling KE 140 Þorskfisknet
Þorskur 14.700 kg
Samtals 14.700 kg
5.12.24 Viktor Sig HU 66 Handfæri
Ufsi 1.263 kg
Þorskur 22 kg
Karfi 4 kg
Samtals 1.289 kg
5.12.24 Grímsey ST 2 Dragnót
Ýsa 2.250 kg
Þorskur 693 kg
Skrápflúra 379 kg
Skarkoli 266 kg
Langlúra 29 kg
Samtals 3.617 kg

Skoða allar landanir »