Fjárfesta í pökkunarlausn frá Marel

Björn Brimar Hákonarson framleiðslustjóri Ísfélags hf. og Sindri Magnason sölumaður …
Björn Brimar Hákonarson framleiðslustjóri Ísfélags hf. og Sindri Magnason sölumaður hjá Marel handsala samninginn Ljósmynd/Aðsend

Ísfélagið hf. hefur fjárfest í Robobatcher Box frá Marel sem mun auka pökkunargetu félagsins. Um er að ræða stórt skref í að auka sjálfvirkni og skilvirkni bolfiskvinnslu félagsins í Vestmannaeyjum, að því er segir í fréttatilkynningu.

„Nýja Robobatcher Box lausnin hjá Ísfélaginu er hönnuð til að raða bakflökum og hnökkum í þriggja eða fimm kílóa kassa með mikilli nákvæmni og hraða, í samræmi við meðalþyngd og stykkjafjölda. Lausnin er tveggja brauta pökkunarlína sem flokkar og raðar ferskum bitum í frauðkassa, ásamt færslukerfi, tékkvogum og límmiðaásetningu,“ segir í tilkynningunni.

Fjárfestingin í pökkunarlausninni var hluti af stækkunarverkefni með nýjum lausfrysti og hefur því tekist að auka afköst í pökkun ferskra afurða án þess að fjölga þurfi starfsfólki á línunni.

„Ef Marel heldur áfram að þróa lausnir sem bæta afkomu framleiðslulínunnar, þá höldum við áfram að velja Marel,“ er haft eftir Birni Brimar Hákonarsyni framleiðslustjóra Ísfélagsins. „Við erum spennt fyrir þeim möguleikum sem tæknivæðingin býður upp á.“

Robobatcher Box er sjálfvirk pökkunarlausn frá Marel.
Robobatcher Box er sjálfvirk pökkunarlausn frá Marel. Ljósmynd/Aðsend

Viðskiptavinur í fleiri áratugi

Bent er á að Ísfélagið hafi verið meðal fyrstu viðskiptavina Marel við stofnun fyrirtækisins. Hraðfrystistöðin, sem síðar sameinaðist Ísfélaginu, pantaði vog frá Marel 1983 þegar félagið var aðeins lítið verkstæði í Garðabænum með tvo starfsmenn.

„Þessi fyrsta vog var mikilvæg tækniframför og var í notkun í áratugi. Reyndar eru það aðeins nokkrar vikur síðan Ísfélagið hætti að nota saltfiskvog með raðnúmerið 41, sannkallaðan safngrip. Vogin, sem hóf feril sinn við saltfiskvinnslu, endaði sem heilpakkavog við gæðaskoðun á pökkuðum uppsjávarafurðum. Samband Marel og Ísfélagsins hefur dafnað og styrkst í gegnum árin, þar sem Marel hefur útvegað lausnir sem hafa stuðlað að hagkvæmni og þróun í vinnslu Ísfélagsins,“ segir í tilkynningunni.

Er vakin athygli á því að nánast allur búnaður í bolfisksal frystihússins í Vestmannaeyjum er frá Marel. Má þar finna tæki á borð við FlexiTrim, FlexiCut, FlexiSort og tveggja brauta vippuflokkara. Allar vogir í húsinu eru frá Marel sem og nokkrir Smartline Flokkarar í uppsjávarlínunni. Auk þess hafa nýlega verið keyptar flæðivogir fyrir uppsjávarlínuna.

„Við erum afar stolt af því að styrkja enn frekar samband Marel og Ísfélagsins,“ segir Sindri Magnason, sölumaður hjá Marel. „Ísfélagið hefur treyst á okkur í mörg ár sem samstarfsaðila, og við erum spennt fyrir því að styðja við áframhaldandi vöxt þeirra.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.5.25 506,20 kr/kg
Þorskur, slægður 19.5.25 585,29 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.5.25 406,58 kr/kg
Ýsa, slægð 19.5.25 355,92 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.5.25 201,02 kr/kg
Ufsi, slægður 19.5.25 257,35 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 23.4.25 20,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 19.5.25 230,96 kr/kg
Litli karfi 13.5.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.5.25 Kvistur HF 550 Handfæri
Þorskur 569 kg
Ufsi 35 kg
Samtals 604 kg
19.5.25 Helgi SH 210 Handfæri
Þorskur 760 kg
Samtals 760 kg
19.5.25 Finnur HF 12 Handfæri
Þorskur 310 kg
Ufsi 145 kg
Ýsa 4 kg
Samtals 459 kg
19.5.25 Vala HF 5 Handfæri
Þorskur 317 kg
Ufsi 108 kg
Samtals 425 kg
19.5.25 Deilir GK 109 Handfæri
Þorskur 859 kg
Ufsi 9 kg
Karfi 4 kg
Samtals 872 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.5.25 506,20 kr/kg
Þorskur, slægður 19.5.25 585,29 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.5.25 406,58 kr/kg
Ýsa, slægð 19.5.25 355,92 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.5.25 201,02 kr/kg
Ufsi, slægður 19.5.25 257,35 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 23.4.25 20,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 19.5.25 230,96 kr/kg
Litli karfi 13.5.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.5.25 Kvistur HF 550 Handfæri
Þorskur 569 kg
Ufsi 35 kg
Samtals 604 kg
19.5.25 Helgi SH 210 Handfæri
Þorskur 760 kg
Samtals 760 kg
19.5.25 Finnur HF 12 Handfæri
Þorskur 310 kg
Ufsi 145 kg
Ýsa 4 kg
Samtals 459 kg
19.5.25 Vala HF 5 Handfæri
Þorskur 317 kg
Ufsi 108 kg
Samtals 425 kg
19.5.25 Deilir GK 109 Handfæri
Þorskur 859 kg
Ufsi 9 kg
Karfi 4 kg
Samtals 872 kg

Skoða allar landanir »