„Það var skítaveður nánast allan túrinn“

Vestmannaey VE landaði í Vestmanneyjum í gær. Áhöfnin kemst nú …
Vestmannaey VE landaði í Vestmanneyjum í gær. Áhöfnin kemst nú í verðskuldað jólafrí. Ljósmynd/Síldarvinnslan/Guðmundur Alfreðsson

Bergur VE lauk í gær síðasta túr fyrir jól og var hann erfiður að sögn Ragnars Waage Pálmasonar skipstjóra. „Það var skítaveður nánast allan túrinn og við vorum á sífelldum flótta undan veðrinu,“ segir Ragnar í færslu á vef Síldarvinnslunnar.

„Við byrjuðum austur á Breiðdalsgrunni og síðan var farið á Gula teppið og eftir það verið Utanfótar. Þaðan lá leiðin á Papagrunn þar sem fékkst ufsi og síðan var klárað á Ingólfshöfða og í Skeiðarárdýpinu. Veiðin var afar róleg eftir að komið var vestur fyrir Hornafjörð og veðrið var ekki til að bæta úr skák. Það er víst vetur og allra veðra von. Það blæs stundum mjög hressilega á okkur en menn verða bara að gera eins gott úr þessu og mögulegt er. Nú erum við komnir í gott jólafrí en hugsanlegt er að haldið verði til veiða á milli hátíða,“ Segir Ragnar.

Í gær lauk einnig síðasta túr Vestmannaeyjar VE og var um „bölvaðan brælutúr“ að ræða að sögn Birgis Þórs Sverrissonar.

„Við byrjuðum á Skrúðsgrunni í ágætis kroppi og fórum síðan suður í Hvalbakshall en þar var lítið að hafa. Þá lá leiðin á Papagrunn þar sem fengust tvö ágæt ufsahol. Þegar komið var suður fyrir landið var stoppað á Ingólfshöfða en þar var ekkert að hafa og eftir það enduðum við í ýsureytingi á Síðugrunni. Það voru bölvaðar sunnanbrælur í túrnum og í nótt var austanstormur. Það er ósköp gott að vera kominn í land og framundan er jólafrí,“ segir Birgir Þór.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 20.1.25 629,30 kr/kg
Þorskur, slægður 20.1.25 694,78 kr/kg
Ýsa, óslægð 20.1.25 415,51 kr/kg
Ýsa, slægð 20.1.25 287,52 kr/kg
Ufsi, óslægður 20.1.25 279,87 kr/kg
Ufsi, slægður 20.1.25 251,32 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.7.23 10,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 14.1.25 21,00 kr/kg
Djúpkarfi 6.1.25 90,00 kr/kg
Gullkarfi 20.1.25 234,68 kr/kg

Fleiri tegundir »

20.1.25 Fjølnir GK 757 Lína
Þorskur 7.098 kg
Ýsa 2.880 kg
Langa 582 kg
Samtals 10.560 kg
20.1.25 Bergur VE 44 Botnvarpa
Þorskur 39.967 kg
Ýsa 11.514 kg
Ufsi 4.916 kg
Karfi 3.517 kg
Samtals 59.914 kg
20.1.25 Harðbakur EA 3 Botnvarpa
Steinbítur 8.204 kg
Þorskur 4.428 kg
Skarkoli 4.215 kg
Karfi 2.194 kg
Ýsa 1.184 kg
Þykkvalúra 889 kg
Samtals 21.114 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 20.1.25 629,30 kr/kg
Þorskur, slægður 20.1.25 694,78 kr/kg
Ýsa, óslægð 20.1.25 415,51 kr/kg
Ýsa, slægð 20.1.25 287,52 kr/kg
Ufsi, óslægður 20.1.25 279,87 kr/kg
Ufsi, slægður 20.1.25 251,32 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.7.23 10,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 14.1.25 21,00 kr/kg
Djúpkarfi 6.1.25 90,00 kr/kg
Gullkarfi 20.1.25 234,68 kr/kg

Fleiri tegundir »

20.1.25 Fjølnir GK 757 Lína
Þorskur 7.098 kg
Ýsa 2.880 kg
Langa 582 kg
Samtals 10.560 kg
20.1.25 Bergur VE 44 Botnvarpa
Þorskur 39.967 kg
Ýsa 11.514 kg
Ufsi 4.916 kg
Karfi 3.517 kg
Samtals 59.914 kg
20.1.25 Harðbakur EA 3 Botnvarpa
Steinbítur 8.204 kg
Þorskur 4.428 kg
Skarkoli 4.215 kg
Karfi 2.194 kg
Ýsa 1.184 kg
Þykkvalúra 889 kg
Samtals 21.114 kg

Skoða allar landanir »