Feðgar saman í Grænlandstúr á jólum

Hafsteinn Úlfar og Karl Guðmundsson faðir hans saman á Brúarfossi …
Hafsteinn Úlfar og Karl Guðmundsson faðir hans saman á Brúarfossi í gær. Sá eldri hér með lukkudýrið Rúdolf sem alltaf er nærri. mbl.is/Sigurður Bogi

„Jólin koma, hvar sem maður er staddur. Þá tilfinningu þekki ég vel; þetta verða mín 30. jól á sjónum, en alls er sjómannsferillinn orðinn 46 ár,“ segir Karl Guðmundsson, skipstjóri á ms. Brúarfossi.

Stórskipið lagði í haf frá Reykjavík í gærkvöldi, á Þorláksmessu, og stefnan var sett á Nuuk á Grænlandi. Verður komið þangað síðdegis á annan dag jóla, gangi allt upp samkvæmt siglingaáætlun, sem þarf að halda hvað sem líður hátíðum.

Vestlægar átti og veltingur

Veðurspáin var ekki beint spennandi þegar Karl leit yfir kortin í gær, þá að gera sjóklárt fyrir túrinn. „Við vorum að koma frá Árósum í Danmörku og vorum í leiðindaveðri alla leiðina. Fórum norður fyrir Færeyjar og hér með suðurströndinni til að vera í skjóli. Svo dúraði þegar komið var inn á Faxaflóann og í höfn. Nú erum við á leiðinni strax út aftur og gera má ráð fyrir veltingi og vestlægum áttum á leiðinni. Þetta verður eitthvað,“ segir skipstjórinn og brosir.

Brúarfoss, 180 metra langt skip og 26.169 tonn á þyngd, verður farinn að nálgast suðurodda Grænlands þegar helgi jólanna verður hringd inn kl. 18 í kvöld.

Gaman með karlinum

„Kokkurinn verður með eitthvað gott í matinn og svo er kakó á eftir. Svo opna menn jólapakka, meðal annars sendinguna sem við fáum alltaf frá Hrönn, sem er kvenfélag skipstjórnarkvenna. Þær eru okkur afskaplega góðar, gjöfin frá þeim er gjarnan rakspíri, vettlingar eða eitthvað slíkt fallegt. Annars veit ég ekki hvað við getum verið með í borðsalnum núna, ef verður eitthvert rugg og stórsjór eins og nú má búast við. Við sjáum hvað setur; þetta verður annars ekkert mál,“ segir Karl, maður sem er öllu vanur eftir langan feril.

Fimmtán menn eru í áhöfninni á Brúarfossi og strákarnir sem taka jólatúrinn voru að tínast um borð í eftirmiðdaginn í gær. Þeir koma svo aftur til Íslands á gamlársdag, gangi allt upp. „Það er bara gaman að sigla með karlinum,“ segir hásetinn Hafsteinn Úlfar; sonur Karls skipstjóra. Þeir feðgarnir voru saman í brúnni og hlökkuðu til að sigla út í svart myrkrið á skipinu sem er lýst og fallega skreytt eins og hæfir á jólum.

Lestun úr flutningaskipi í gærmorgun. Síðasta sendingin fyrir jól og …
Lestun úr flutningaskipi í gærmorgun. Síðasta sendingin fyrir jól og áramót; alls konar sem kemur til Íslands frá Árósum. mbl.is/Sigurður Bogi
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.5.25 506,20 kr/kg
Þorskur, slægður 19.5.25 585,29 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.5.25 406,58 kr/kg
Ýsa, slægð 19.5.25 355,92 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.5.25 201,02 kr/kg
Ufsi, slægður 19.5.25 257,35 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 23.4.25 20,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 19.5.25 230,96 kr/kg
Litli karfi 13.5.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.5.25 Atlas AK 60 Handfæri
Þorskur 714 kg
Samtals 714 kg
19.5.25 Silfurborg SU 22 Dragnót
Steinbítur 5.819 kg
Skarkoli 459 kg
Ýsa 281 kg
Þorskur 164 kg
Samtals 6.723 kg
19.5.25 Hafrafell SU 65 Lína
Þorskur 1.769 kg
Ýsa 1.051 kg
Steinbítur 585 kg
Keila 292 kg
Karfi 10 kg
Samtals 3.707 kg
19.5.25 Hafborg EA 152 Dragnót
Steinbítur 17.843 kg
Skarkoli 9.575 kg
Þorskur 1.918 kg
Ýsa 400 kg
Sandkoli 228 kg
Þykkvalúra 220 kg
Samtals 30.184 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.5.25 506,20 kr/kg
Þorskur, slægður 19.5.25 585,29 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.5.25 406,58 kr/kg
Ýsa, slægð 19.5.25 355,92 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.5.25 201,02 kr/kg
Ufsi, slægður 19.5.25 257,35 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 23.4.25 20,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 19.5.25 230,96 kr/kg
Litli karfi 13.5.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.5.25 Atlas AK 60 Handfæri
Þorskur 714 kg
Samtals 714 kg
19.5.25 Silfurborg SU 22 Dragnót
Steinbítur 5.819 kg
Skarkoli 459 kg
Ýsa 281 kg
Þorskur 164 kg
Samtals 6.723 kg
19.5.25 Hafrafell SU 65 Lína
Þorskur 1.769 kg
Ýsa 1.051 kg
Steinbítur 585 kg
Keila 292 kg
Karfi 10 kg
Samtals 3.707 kg
19.5.25 Hafborg EA 152 Dragnót
Steinbítur 17.843 kg
Skarkoli 9.575 kg
Þorskur 1.918 kg
Ýsa 400 kg
Sandkoli 228 kg
Þykkvalúra 220 kg
Samtals 30.184 kg

Skoða allar landanir »