Strandveiðar í forgangi

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra.
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra. mbl.is/Karítas

Svigrúm til strandveiða verður aukið til muna samkvæmt stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar. Þar segir að 48 dagar verði tryggðir á næsta ári og í 12 daga í hverjum mánuði eða í maí, júní, júlí og ágúst.

Örn Pálsson, hjá Landssambandi smábátaeigenda, sagðist í samtali við 200 mílur líta svo á að fyrirkomulagið verði væntanlega til framtíðar.

Hanna Katrín Friðriksson er nýtekin við embætti atvinnuvegaráðherra og segist telja mögulegt að breytingar á fyrirkomulagi strandveiða geti tekið gildi fyrir næsta sumar.

„Það liggur alveg ljóst fyrir samkvæmt stjórnarsáttmálanum að eitt af forgangsverkefnum í mínu ráðuneyti er að fara ofan í þetta og finna leiðir. Vinna þarf hratt og vel því ætlunin er að þetta taki gildi fyrir sumarið. Í ljósi þess hversu skýrt þetta er orðað, og hversu mikill vilji er hjá flokkunum þremur, þá verður þetta eitt þeirra verkefna sem fara í forgang,“ segir Hanna Katrín.

Útfærslan óljós

Spurð um útfærsluna segir hún of snemmt að fullyrða um hvaða leið verði farin til að auka veiðarnar en tilfærsla á aflaheimildum verði skoðuð. „Ég hef hug á að skoða tilfærslu heimilda en áður þarf ég að kynna mér gögn í ráðuneytinu og ræða við ýmsa aðila. Ég verð að gefa mér það svigrúm á þessum tímapunkti,“ segir Hanna Katrín en Örn segir að með lengra tímabili megi tryggja jafnræði milli landshluta.

Fiskistofa stöðvaði strandveiðar 12. júlí en þá sé stóri þorskurinn rétt að ganga inn á grunnslóð á Norður- og Austurlandi. „Það er eitt af því sem skiptir máli og undanfarin ár hefur svæðaskipulagið verið skoðað með það fyrir augum að finna lausnir. Fyrir ákveðna landshluta hefur skipulagið verið ósanngjarnt. Einnig hefur verið vilji fyrir því að stöðva að menn fari út í hvaða veðri sem er enda er það bókstaflega hættulegt,“ segir Hanna Katrín.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 21.5.25 488,01 kr/kg
Þorskur, slægður 21.5.25 604,38 kr/kg
Ýsa, óslægð 21.5.25 391,64 kr/kg
Ýsa, slægð 21.5.25 398,19 kr/kg
Ufsi, óslægður 21.5.25 195,12 kr/kg
Ufsi, slægður 21.5.25 259,64 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 23.4.25 20,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 21.5.25 248,17 kr/kg
Litli karfi 13.5.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

21.5.25 Salómon Sig ST 70 Handfæri
Þorskur 772 kg
Samtals 772 kg
21.5.25 Nonni SU 36 Handfæri
Þorskur 493 kg
Ufsi 80 kg
Karfi 6 kg
Samtals 579 kg
21.5.25 Hulda SF 197 Handfæri
Þorskur 830 kg
Ufsi 119 kg
Samtals 949 kg
21.5.25 Már SU 145 Handfæri
Ufsi 852 kg
Þorskur 771 kg
Samtals 1.623 kg
21.5.25 Bára ST 91 Handfæri
Þorskur 695 kg
Samtals 695 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 21.5.25 488,01 kr/kg
Þorskur, slægður 21.5.25 604,38 kr/kg
Ýsa, óslægð 21.5.25 391,64 kr/kg
Ýsa, slægð 21.5.25 398,19 kr/kg
Ufsi, óslægður 21.5.25 195,12 kr/kg
Ufsi, slægður 21.5.25 259,64 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 23.4.25 20,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 21.5.25 248,17 kr/kg
Litli karfi 13.5.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

21.5.25 Þröstur ÓF 42 Handfæri
Þorskur 534 kg
Ýsa 3 kg
Samtals 537 kg
21.5.25 Blíða VE 263 Handfæri
Þorskur 629 kg
Keila 24 kg
Ufsi 13 kg
Samtals 666 kg
21.5.25 Rabbý SI 37 Handfæri
Þorskur 772 kg
Ufsi 2 kg
Samtals 774 kg
21.5.25 Dolli í Sjónarhól VE 317 Handfæri
Þorskur 151 kg
Ufsi 61 kg
Samtals 212 kg

Skoða allar landanir »