Meirihluti óánægður með ákvörðun Bjarna

Bjarni Benediktsson.
Bjarni Benediktsson. mbl.is/Árni Sæberg

51% landsmanna er óánægt með þá ákvörðun Bjarna Benediktssonar, þáverandi matvælaráðherra í starfsstjórn, að veita nýtt leyfi til veiða á langreyðum, samkvæmt nýrri könnun Maskínu. 35% segjast hins vegar ánægð með ákvörðunina.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Dýraverndunarsambandi Íslands og Náttúruverndarsamtökum Íslands.

Þegar spurt var hvort fólk væri hlynnt eða andvígt því að hvalveiðar yrðu bannaðar með lögum sögðust 44% hlynnt slíku banni en 39% sögðust því andvíg.

„Þannig liggur fyrir að mun fleiri eru óánægð með ákvörðun um nýtt hvalveiðileyfi og sömuleiðis styðja marktækt fleiri landsmenn að hvalveiðar verði bannaðar með lögum,“ segir í tilkynningunni.

Könnun Maskínu fyrir Dýraverndarsamband Íslands og Náttúruverndarsamtök Íslands var  gerð dagana 12. til 19. desember síðastliðinn, á meðan starfsstjórn Bjarna Benediktssonar var enn að störfum. Svarendur voru 2.062 talsins.

61% kvenna er óánægt með ákvörðun um nýtt hvalveiðileyfi, 63% íbúa höfuðborgarinnar sömuleiðis og 65% þeirra sem eru með háskólamenntun.

„Þegar rýnt er í niðurstöður könnunarinnar varðandi spurninguna hvort fólk sé hlynnt eða andvígt því að hvalveiðar verði bannaðar með lögum kemur í ljós að 53% kvenna lýsa sig hlynnt slíkri lagasetningu, 58% íbúa höfuðborgarinnar og 57% fólks með háskólamenntun,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.1.25 540,91 kr/kg
Þorskur, slægður 19.1.25 672,17 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.1.25 389,48 kr/kg
Ýsa, slægð 19.1.25 323,26 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.1.25 283,17 kr/kg
Ufsi, slægður 19.1.25 244,63 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.7.23 10,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 14.1.25 21,00 kr/kg
Djúpkarfi 6.1.25 90,00 kr/kg
Gullkarfi 19.1.25 216,57 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.1.25 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Ýsa 1.064 kg
Þorskur 298 kg
Steinbítur 47 kg
Keila 17 kg
Hlýri 15 kg
Samtals 1.441 kg
17.1.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 8.767 kg
Ýsa 5.091 kg
Steinbítur 294 kg
Langa 219 kg
Keila 78 kg
Karfi 20 kg
Samtals 14.469 kg
17.1.25 Eskey ÓF 80 Línutrekt
Þorskur 10.232 kg
Ýsa 1.981 kg
Langa 354 kg
Karfi 37 kg
Steinbítur 26 kg
Samtals 12.630 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.1.25 540,91 kr/kg
Þorskur, slægður 19.1.25 672,17 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.1.25 389,48 kr/kg
Ýsa, slægð 19.1.25 323,26 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.1.25 283,17 kr/kg
Ufsi, slægður 19.1.25 244,63 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.7.23 10,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 14.1.25 21,00 kr/kg
Djúpkarfi 6.1.25 90,00 kr/kg
Gullkarfi 19.1.25 216,57 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.1.25 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Ýsa 1.064 kg
Þorskur 298 kg
Steinbítur 47 kg
Keila 17 kg
Hlýri 15 kg
Samtals 1.441 kg
17.1.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 8.767 kg
Ýsa 5.091 kg
Steinbítur 294 kg
Langa 219 kg
Keila 78 kg
Karfi 20 kg
Samtals 14.469 kg
17.1.25 Eskey ÓF 80 Línutrekt
Þorskur 10.232 kg
Ýsa 1.981 kg
Langa 354 kg
Karfi 37 kg
Steinbítur 26 kg
Samtals 12.630 kg

Skoða allar landanir »