Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna og útvegsmanna í dag var ákveðið að hækka viðmiðunarverð þorsks um 8% og ýsu um 11,1% en viðmiðunarverð ufsa og karfa helst óbreytt, að því er fram kemur í tilkynningu á vef Verðlagsstofu skiptaverðs.
Viðmiðunarverð, eða svokallað verðlagstofuverð, er lágmarksverð við innri sölu útgerða sem reka eigin vinnslu og er til grundvallar launa sjómanna. Geta sjómenn því átt von á myndarlegri launaukningu nú í upphafi vetrarvertíðarinnar, að því gefnu að aflinn verði myndarlegur.
Viðmiðunarverð slægðs fimm kílóa þorsks er nú 455,2 krónur og 372,15 krónur óslægt. Viðmiðunarverðið á slægðum þorski er nú 16% hærra en í janúar 2024 og hefur líklega aldrei verið hærra.
Verð slægðrar tveggja kílóa ýsu í janúar verður 224,06 krónur en 211,89 krónur óslægt. Viðmiðunarverð slægðrar og óslægðrar ýsu breyttist síðast nóvember 2023 þegar verð var lækkað um 9%. Viðmiðunarverð á slægðri ýsu náði hámarki sínu í apríl til maí 2023 þegar það nam 280,97 krónum.
Þá hefur verð á ufsa haldist óbreytt í 210,3 krónum frá mars á síðasta ári. Hæst var það á tímabilinu júní til nóvember 2023 þegar það var 233 krónur.
Viðmiðunarverð karfa hefur er nú 180,68 krónur og hefur verið óbreytt frá og með júní síðastliðnum, en á tímabilinu desember 2023 til maí 2024 var það 188,21 króna sem er jafnframt hæsta lágmarksverð sem sést hefur.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 19.5.25 | 505,66 kr/kg |
Þorskur, slægður | 19.5.25 | 585,29 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 19.5.25 | 399,82 kr/kg |
Ýsa, slægð | 19.5.25 | 355,92 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 19.5.25 | 200,85 kr/kg |
Ufsi, slægður | 19.5.25 | 257,35 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 23.4.25 | 20,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 17.3.25 | 188,00 kr/kg |
Gullkarfi | 19.5.25 | 231,57 kr/kg |
Litli karfi | 13.5.25 | 10,00 kr/kg |
19.5.25 Fossavík ST 51 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 774 kg |
Samtals | 774 kg |
19.5.25 Máni ÍS 87 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 167 kg |
Ufsi | 11 kg |
Samtals | 178 kg |
19.5.25 Tjaldur ÓF 3 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 381 kg |
Ufsi | 4 kg |
Samtals | 385 kg |
19.5.25 Bjössi Völku ST 20 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 740 kg |
Ufsi | 9 kg |
Samtals | 749 kg |
19.5.25 Bára ST 91 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 774 kg |
Samtals | 774 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 19.5.25 | 505,66 kr/kg |
Þorskur, slægður | 19.5.25 | 585,29 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 19.5.25 | 399,82 kr/kg |
Ýsa, slægð | 19.5.25 | 355,92 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 19.5.25 | 200,85 kr/kg |
Ufsi, slægður | 19.5.25 | 257,35 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 23.4.25 | 20,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 17.3.25 | 188,00 kr/kg |
Gullkarfi | 19.5.25 | 231,57 kr/kg |
Litli karfi | 13.5.25 | 10,00 kr/kg |
19.5.25 Fossavík ST 51 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 774 kg |
Samtals | 774 kg |
19.5.25 Máni ÍS 87 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 167 kg |
Ufsi | 11 kg |
Samtals | 178 kg |
19.5.25 Tjaldur ÓF 3 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 381 kg |
Ufsi | 4 kg |
Samtals | 385 kg |
19.5.25 Bjössi Völku ST 20 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 740 kg |
Ufsi | 9 kg |
Samtals | 749 kg |
19.5.25 Bára ST 91 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 774 kg |
Samtals | 774 kg |