Töf á mælingu vegna viðgerðar

Tafir á viðgerð á Árna Friðrikssyni olli sienkun á upphafi …
Tafir á viðgerð á Árna Friðrikssyni olli sienkun á upphafi vetrarmælingar Hafrannsóknastofnunar. mbl.is/Sigurður Bogi

Smávægileg seinkun hefur verið á vetrarmælingu Hafrannsóknastofnunar á loðnustofninum vegna tafa í viðgerðum á rannsóknaskipinu Árna Friðrikssyni. Gert er ráð fyrir að viðgerðum ljúki á mánudag og að haldið verði til mælinga á þriðjudag.

Þetta upplýsir Guðmundur J. Óskarsson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs Hafrannsóknastofnunar.

„Þá verður byrjað á kvörðun bergmálsmæla líklegast fyrir austan miðað við veðurspár, og hann [Árni Friðriksson] verði þá kominn á miðin á fimmtudag/föstudag. Þrjú veiðiskip munu jafnframt verða með í mælingunum. Þau eru á kolmunnaveiðum núna en munu skila sér til löndunar fljótlega og í kvörðun á mælum. Þau fara svo líka af stað seinni hluta næstu viku í loðnu, þetta eru Heimaey, Polar Ammassak og líklegast Aðalsteinn Jónsson. Auðvitað er þetta allt háð veðri en við áætlum að yfirferðin gæti tekið um viku,“ segir hann.

Af þessum skipum munu þau sem landa á næstu dögum á Austurlandi sigla eftir leiðarlínum fyrir austan land. Línurnar hafa verið teiknaðar af Hafrannsóknastofnun til að kanna syðri hluta austursvæðisins á skipulagðan hátt með tilliti til loðnu, að sögn Guðmundar.

Guðmudnur Óskarsson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs Hafrannsóknastofnunar
Guðmudnur Óskarsson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs Hafrannsóknastofnunar mbl.is/Kristinn Magnússon

Fundu lítið í desember

Hafrannsóknastofnun gaf síðastliðið haust út raðgjöf um engar loðnuveiðar þennan veturinn og vísaði til þess að ekki hafi fundist næg loðna í haustleiðangrinum til að réttlæta veiðar.

Ákveðið var, af frumkvæði útgerða og í samstarfi við stofnunina, að fara í könnunarleiðangur í byrjun desember. Hélt Aðalsteinn Jónsson SU til loðnuleitar, en allt kom fyrir ekki því mjög lítið sást til loðnu í leiðangrinum.

Mikið er undir því stök loðnuvertíð getur skilað nokkra tugi milljarða króna í útflutningstekjur fyrir þjóðarbúið. Eru bundnar vonir við að vetrarmælingin sýni fram á næga loðnu til að réttlæta endurkskoðun ráðgjafar Hafrannsóknastofnunar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 14.1.25 576,36 kr/kg
Þorskur, slægður 14.1.25 659,33 kr/kg
Ýsa, óslægð 14.1.25 378,96 kr/kg
Ýsa, slægð 14.1.25 233,35 kr/kg
Ufsi, óslægður 14.1.25 182,97 kr/kg
Ufsi, slægður 14.1.25 218,63 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 14.1.25 21,00 kr/kg
Djúpkarfi 6.1.25 90,00 kr/kg
Gullkarfi 14.1.25 220,16 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

14.1.25 Erling KE 140 Þorskfisknet
Þorskur 3.764 kg
Samtals 3.764 kg
14.1.25 Dagrún HU 121 Þorskfisknet
Þorskur 511 kg
Samtals 511 kg
14.1.25 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 1.425 kg
Ufsi 241 kg
Karfi 14 kg
Samtals 1.680 kg
14.1.25 Viðey RE 50 Botnvarpa
Karfi 54.692 kg
Þorskur 54.480 kg
Ufsi 21.582 kg
Ýsa 21.435 kg
Samtals 152.189 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 14.1.25 576,36 kr/kg
Þorskur, slægður 14.1.25 659,33 kr/kg
Ýsa, óslægð 14.1.25 378,96 kr/kg
Ýsa, slægð 14.1.25 233,35 kr/kg
Ufsi, óslægður 14.1.25 182,97 kr/kg
Ufsi, slægður 14.1.25 218,63 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 14.1.25 21,00 kr/kg
Djúpkarfi 6.1.25 90,00 kr/kg
Gullkarfi 14.1.25 220,16 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

14.1.25 Erling KE 140 Þorskfisknet
Þorskur 3.764 kg
Samtals 3.764 kg
14.1.25 Dagrún HU 121 Þorskfisknet
Þorskur 511 kg
Samtals 511 kg
14.1.25 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 1.425 kg
Ufsi 241 kg
Karfi 14 kg
Samtals 1.680 kg
14.1.25 Viðey RE 50 Botnvarpa
Karfi 54.692 kg
Þorskur 54.480 kg
Ufsi 21.582 kg
Ýsa 21.435 kg
Samtals 152.189 kg

Skoða allar landanir »