Loðnumæling tafðist er Árni leitaði í var

Rannsóknaskipið Árni Friðriksson sem var á leið til loðnumælinga snér …
Rannsóknaskipið Árni Friðriksson sem var á leið til loðnumælinga snér við og leitaði í var. (Mynd úr safni) Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Tafir urðu á loðnumælingu rannsóknaskipsins Árna Friðrikssonar um helgina, en veðurfarið hefur ekki verið upp á marga fiska. Þurfti skipið að snúa við á suðvestanverðum Strandagrunni sækja í var við Grænuhlíð við fjarðarmynni Ísafjarðardjúps.

Leiddi hvassviðri og bræla til þess að Árni Friðriksson hélt sér þar allan gærdag og síðastliðna nótt, hélt hann áfram til norðurs um klukkan sex í morgun.

Vetrarmæling Hafrannsóknastofnunar hefur þegar orðið fyrir töfum vegna viðgerðar á Árna Friðrikssyni, og stefnt að því að hann yrði kominn á miðin fimmtudag eða föstudag í síðustu viku. Tafirnar urðu þó aðeins lengri og lagði skipið ekki frá bryggju fyrr en um klukkan átta síðastliðinn mánudag en hélt þá til Hvalfjarðar í kvörðun.

Árni Friðriksson er nú norður af Hornströndum og stefnir á að hefja mælingar norður af landinu. Veður virðist ætla að verða í lagi, en hafís gæti truflað vestasta leitarsvæðið.

Eins og sjá má á ferli Árna Friðrikssonar þurfti skipið …
Eins og sjá má á ferli Árna Friðrikssonar þurfti skipið að snúa við og sótti í var við Grænuhlíð. Skjáskot

Eins og greint var frá í síðustu viku hélt Barði NK og grænlenska skipið Polar Ammassak til mælinga upp úr hádegi 16. janúar og hófu þau leit norðaustur af landinu og leita eftir skipulögðum leitarlínum austur með landinu í suðurátt. Eru þau núna stödd um það bil 70 sjómílur austur af Bakkaflóa.

Enn sem komið er hefur Heimaey VE ekki tekið þátt í leitinni að loðnunni og bíður átekta í Þórshöfn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 11.2.25 593,85 kr/kg
Þorskur, slægður 11.2.25 546,56 kr/kg
Ýsa, óslægð 11.2.25 381,26 kr/kg
Ýsa, slægð 11.2.25 356,00 kr/kg
Ufsi, óslægður 11.2.25 227,73 kr/kg
Ufsi, slægður 11.2.25 264,97 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 30.1.25 16,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Gullkarfi 11.2.25 407,26 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

11.2.25 Oddur Á Nesi SI 176 Línutrekt
Þorskur 7.044 kg
Ýsa 336 kg
Karfi 94 kg
Hlýri 22 kg
Samtals 7.496 kg
11.2.25 Elva Björg SI 84 Handfæri
Þorskur 414 kg
Samtals 414 kg
11.2.25 Natalia NS 90 Línutrekt
Þorskur 943 kg
Ýsa 331 kg
Steinbítur 43 kg
Keila 2 kg
Samtals 1.319 kg
11.2.25 Von HU 170 Þorskfisknet
Ufsi 715 kg
Þorskur 167 kg
Steinbítur 3 kg
Samtals 885 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 11.2.25 593,85 kr/kg
Þorskur, slægður 11.2.25 546,56 kr/kg
Ýsa, óslægð 11.2.25 381,26 kr/kg
Ýsa, slægð 11.2.25 356,00 kr/kg
Ufsi, óslægður 11.2.25 227,73 kr/kg
Ufsi, slægður 11.2.25 264,97 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 30.1.25 16,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Gullkarfi 11.2.25 407,26 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

11.2.25 Oddur Á Nesi SI 176 Línutrekt
Þorskur 7.044 kg
Ýsa 336 kg
Karfi 94 kg
Hlýri 22 kg
Samtals 7.496 kg
11.2.25 Elva Björg SI 84 Handfæri
Þorskur 414 kg
Samtals 414 kg
11.2.25 Natalia NS 90 Línutrekt
Þorskur 943 kg
Ýsa 331 kg
Steinbítur 43 kg
Keila 2 kg
Samtals 1.319 kg
11.2.25 Von HU 170 Þorskfisknet
Ufsi 715 kg
Þorskur 167 kg
Steinbítur 3 kg
Samtals 885 kg

Skoða allar landanir »