Verðlaunuðu Klofning og Íslandssögu

F.v. Einar Ómarsson, Óðinn Gestsson, Nanný Arna Guðmundsdóttir, Hafdís Gunnarsdóttir …
F.v. Einar Ómarsson, Óðinn Gestsson, Nanný Arna Guðmundsdóttir, Hafdís Gunnarsdóttir og Guðrún Birgisdóttir. Ljósmynd/Ísafjarðarbær

Fiskvinnslan Íslandssaga og hausaþurrkunarfyrirtækið Klofningur á Suðureyri hlutu hvatningarverðlaun skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar Ísafjarðarbæjar fyrir framúrskarandi skólaumhverfi 2024, að því er segir í tilkynningu á vef sveitarfélagsins.

Fram kemur að fyrirtækin hafa í meira en tvo áratugi boðið grunnskólanemum í heimsókn þar sem þau geta kynnst vinnslu og útgerð.

„Á hverju vori bjóða fyrirtækin nemendum í 1. bekk í Grunnskólanum á Ísafirði í sérstaka heimsókn auk þess að bjóða nemendum í Grunnskólanum á Suðureyri reglulega í heimsókn. Í heimsóknunum er fiskvinnslan skoðuð og nemendur sjá hvernig fisknum er breytt í verðmæta útflutningsvöru. Allir nemendur eru svo sendir heim með fisk í soðið sem þeir borða með bestu lyst. Oft tala nemendur um að þetta sé besti fiskur í heimi. Mikil tilhlökkun er meðal nemenda, kennara og jafnvel foreldra fyrir þessari heimsókn og í Íslandssögu og Klofningi kallast hún vorboðinn ljúfi,“ segir í tilkynningunni.

Nanný Arna Guðmundsdóttir, formaður skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar, afhenti verðlaunin og þeir Óðinn Gestsson, framkvæmdastjóri Íslandssögu, og Einar Ómarsson hjá Klofningi tóku við þeim 14. janúar síðastliðinn. Einnig voru viðstaddar þær Hafdís Gunnarsdóttir, sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs, og Guðrún Birgisdóttir, skóla- og sérkennslufulltrúi.

Er þetta fjórða sinn sem verðlaunin eru veitt og bárust alls sex tilnefningar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.2.25 600,33 kr/kg
Þorskur, slægður 17.2.25 521,02 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.2.25 378,11 kr/kg
Ýsa, slægð 17.2.25 295,90 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.2.25 235,11 kr/kg
Ufsi, slægður 17.2.25 262,34 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 30.1.25 16,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Gullkarfi 17.2.25 339,48 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.2.25 Hafrafell SU 65 Lína
Þorskur 854 kg
Keila 474 kg
Hlýri 365 kg
Ýsa 229 kg
Steinbítur 122 kg
Karfi 34 kg
Samtals 2.078 kg
17.2.25 Hafborg EA 152 Dragnót
Ýsa 3.907 kg
Þorskur 2.372 kg
Steinbítur 348 kg
Langlúra 179 kg
Skarkoli 126 kg
Karfi 38 kg
Sandkoli 33 kg
Grásleppa 27 kg
Þykkvalúra 23 kg
Ufsi 22 kg
Hlýri 14 kg
Samtals 7.089 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.2.25 600,33 kr/kg
Þorskur, slægður 17.2.25 521,02 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.2.25 378,11 kr/kg
Ýsa, slægð 17.2.25 295,90 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.2.25 235,11 kr/kg
Ufsi, slægður 17.2.25 262,34 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 30.1.25 16,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Gullkarfi 17.2.25 339,48 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

17.2.25 Hafrafell SU 65 Lína
Þorskur 854 kg
Keila 474 kg
Hlýri 365 kg
Ýsa 229 kg
Steinbítur 122 kg
Karfi 34 kg
Samtals 2.078 kg
17.2.25 Hafborg EA 152 Dragnót
Ýsa 3.907 kg
Þorskur 2.372 kg
Steinbítur 348 kg
Langlúra 179 kg
Skarkoli 126 kg
Karfi 38 kg
Sandkoli 33 kg
Grásleppa 27 kg
Þykkvalúra 23 kg
Ufsi 22 kg
Hlýri 14 kg
Samtals 7.089 kg

Skoða allar landanir »