Byggðakvóti dregst saman um 22%

Hnífsdalur fær engan byggðakvóta á þessu fiskveiðiári, en fékk 137 …
Hnífsdalur fær engan byggðakvóta á þessu fiskveiðiári, en fékk 137 tonn á því síðasta. Sex byggðarlög sem fengu byggðakvóta á síðasta fiskveiðiári fá engan slíkan kvóta á þessu ári. Ljósmynd/Halldór Sveinbjörnsson

Úthlutað hefur verið almennum byggðakvóta til 42 byggðalaga í 25 sveitarfélögum vegna fiskveiðiársins 2024/2025. Alls hefur verið ráðstafað 3.807 þorskígildistonnum sem er 1.022 færri tonn en á síðasta fiskveiðiári, nemur samdrátturinn milli ára 22%.

Sex byggðarlög sem fengu úthlutað byggðakvóta vegna síðasta fiskveiðiárs fá það ekki að þessu sinni, en engin ný byggðarlög fá slíkan kvóta. Byggðakvóta er ætlað að styðja byggðarlög í alvarlegum og bráðum vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi og mæta áföllum sem fyrirsjáanleg eru vegna verulegra breytinga á aflamarki einstaka tegunda.

Hnífsdalur verður af mestum byggðakvóta, 137 tonn, og Skagaströnd af næst mestum, 115 tonn. Tálknafjörður, Flateyri og Djúpivogur fá mestan byggðakvóta, hvort um sig 285 tonn.

Sundurgreiningu á úthlutuninni má finna neðst í fréttinni.

Mest til Vestfjarða

Greint er frá úthlutininni á vef matvælaráðuneytisins. Þar segir að „byggðalög með færri en 400 íbúa fá 2.259 þorskígildistonnum úthlutað og byggðarlög með fleiri en 400 íbúa fá úthlutað 1.548 þorskígildistonnum. Alls fá ellefu byggðalög lágmarksúthlutun upp á 15 þorskígildistonn og þrjú byggðalög fá hámarksúthlutun 285 þorskígildistonna.“

Mestum byggðakvóta er úthlutað byggðarlögum á Vestfjöðrum og fá þau alls 1.593 þorskígildistonn eða tæp 42% alls almenns byggðakvóta sem úthlutað er á fiskveiðiárinu. Á eftir fylgir Norðurland eystra með rúm þúsund tonn. Minnst er úthlutað til byggðarlaga á Suðurlandi.

Ráðuneytið vekur athygli á því að til viðbótar við úthlutun ársins koma eftirstöðvar frá fyrra ári einnig til ráðstöfunar í þeim byggðarlögum sem slíkt á við. Alls nemur flutningur almenns byggðakvóta milli ára nær 1.038 þorksígildistonnum.

Óskað eftir áliti sveitarstjórna

Þá verður sveitarstjórnum tilkynnt um úthlutun byggðakvóta til einstakra byggðarlaga í dag og mun ráðuneytið leita eftir afstöðu viðkomandi sveitarstjórna hvort þær óski eftir að setja sérstök skilyrði fyrir úthlutun aflamarksins innan einstakra byggðarlaga. Sveitarstjórnum er veittur frestur til 21. febrúar til að senda ráðuneytinu tillögur sínar.

Innsendar tillögur sveitarstjórna verða til kynningar á vef ráðuneytisins eigi skemur en í sjö daga áður en tekin verður afstaða til þeirra, en komi ekki fram óskir um sérreglur mun ráðuneytið beina því til Fiskistofu að auglýsa byggðakvóta fyrir viðkomandi byggðarlög til umsóknar.

Uppfært 23. janúar klukkan 12:58. Í fréttinni hrófluðust til tölur er snéru að úthlutuðum byggðakvóta fiskveiðiárið 2023/2024. Voru það sex byggðarlög sem verða af öllum sínum byggðakvóta, ekki sjö eins og áður sagði. Fréttin hefur verið leiðrétt sem og tölur í töflunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 14.2.25 577,57 kr/kg
Þorskur, slægður 14.2.25 518,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 14.2.25 344,01 kr/kg
Ýsa, slægð 14.2.25 305,04 kr/kg
Ufsi, óslægður 14.2.25 232,89 kr/kg
Ufsi, slægður 14.2.25 276,38 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 30.1.25 16,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Gullkarfi 14.2.25 437,74 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

14.2.25 Fanney EA 48 Línutrekt
Þorskur 3.110 kg
Steinbítur 398 kg
Ýsa 93 kg
Samtals 3.601 kg
14.2.25 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Ýsa 9.448 kg
Þorskur 1.445 kg
Steinbítur 30 kg
Karfi 14 kg
Langa 9 kg
Samtals 10.946 kg
14.2.25 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Ýsa 1.505 kg
Þorskur 492 kg
Keila 186 kg
Hlýri 151 kg
Karfi 39 kg
Steinbítur 18 kg
Samtals 2.391 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 14.2.25 577,57 kr/kg
Þorskur, slægður 14.2.25 518,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 14.2.25 344,01 kr/kg
Ýsa, slægð 14.2.25 305,04 kr/kg
Ufsi, óslægður 14.2.25 232,89 kr/kg
Ufsi, slægður 14.2.25 276,38 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 30.1.25 16,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Gullkarfi 14.2.25 437,74 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

14.2.25 Fanney EA 48 Línutrekt
Þorskur 3.110 kg
Steinbítur 398 kg
Ýsa 93 kg
Samtals 3.601 kg
14.2.25 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Ýsa 9.448 kg
Þorskur 1.445 kg
Steinbítur 30 kg
Karfi 14 kg
Langa 9 kg
Samtals 10.946 kg
14.2.25 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Ýsa 1.505 kg
Þorskur 492 kg
Keila 186 kg
Hlýri 151 kg
Karfi 39 kg
Steinbítur 18 kg
Samtals 2.391 kg

Skoða allar landanir »