Unnu úr 247 þúsund tonnum

Vinnslustöðvar Síldarvinnslunnar tóku við rúmlega 247 þúsund tonnum til vinnslu …
Vinnslustöðvar Síldarvinnslunnar tóku við rúmlega 247 þúsund tonnum til vinnslu á síðasta ári. Ljósmynd/Síldarvinnslan: Smári Geirsson

Vinnslustöðvar samstæðu Síldarvinnslunnar hf. unnu úr 247.670 tonnum á síðasta ári, þar af um 236.070 tonn uppsjávarafli og 11.600 tonn bolfiskafli.

Rifjað er upp í færslu á vef Síldarvinnslunnar að á síðasta ári var loðnunni saknað auk þess sem starfsemin í Grindavík varð fyrir verulegum truflunum vegna náttúruhamfaranna þar.

Árið 2024 var unninn saltfiskur úr tæplega 7.300 tonnum hjá dótturfélaginu Vísi og var hráefnið þorskur, langa, keila og ufsi. Tæplega 5.300 tonn voru unnin í salthúsinu í Grindavík en frá febrúar til maí var unnið úr tvö þúsund tonnum í Helguvík, þar sem komið var á fót saltfiskvinnslu eftir að Grindavík var rýmd.

Fram kemur að vinnsla í frystihúsi Vísis í Grindavik hafi starfsemin verið slitrótt vegna eldsumbrota og jarðhræringa, en tókst að taka á móti 4.300 tonnum til frystingar.

145 þúsund tonn af kolmunna

Fiskiðjuverið í Neskaupstað tók á móti rúmlega 58 þúsund tonnum á árinu. Móttekin síld var 36.772 tonn, móttekinn makríll 19.886 tonn og loðna 1.698 tonn, en loðnan sem um ræðir fékkst af norskum skipum.

Þá tóku fiskimjölsverksmiðjurnar í Neskaupstað og á Seyðisfirði á móti tæplega 178 þúsund tonnum á síðasta ári. Verksmiðjan í Neskaupstað tók á móti 125.714 tonnum og verksmiðjan á Seyðisfirði 52 þúsund tonnum.

„Allur afli sem barst til verksmiðjunnar á Seyðisfirði var kolmunni en verksmiðjan í Neskaupstað tók á móti 93.058 tonnum af kolmunna, 12.964 tonnum af makríl, 18.383 tonnum af síld, 114 tonnum af loðnu og 1.195 tonnum af ýmsum meðafla. Tekið skal fram að engum makríl og engri síld var landað beint í fiskimjölsverksmiðjuna í Neskaupstað heldur kom það hráefni frá fiskiðjuverinu og var einungis fiskur sem flokkaðist frá við manneldisvinnsluna og afskurður,“ segir í færslunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 14.2.25 578,83 kr/kg
Þorskur, slægður 14.2.25 518,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 14.2.25 346,10 kr/kg
Ýsa, slægð 14.2.25 305,04 kr/kg
Ufsi, óslægður 14.2.25 233,75 kr/kg
Ufsi, slægður 14.2.25 276,38 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 30.1.25 16,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Gullkarfi 14.2.25 435,51 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

14.2.25 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 1.331 kg
Þorskur 592 kg
Ýsa 24 kg
Keila 20 kg
Samtals 1.967 kg
14.2.25 Eskey ÓF 80 Línutrekt
Þorskur 12.630 kg
Ýsa 826 kg
Langa 144 kg
Steinbítur 112 kg
Ufsi 25 kg
Karfi 15 kg
Keila 15 kg
Samtals 13.767 kg
14.2.25 Jóhanna ÁR 206 Plógur
Sæbjúga Au G 5.897 kg
Samtals 5.897 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 14.2.25 578,83 kr/kg
Þorskur, slægður 14.2.25 518,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 14.2.25 346,10 kr/kg
Ýsa, slægð 14.2.25 305,04 kr/kg
Ufsi, óslægður 14.2.25 233,75 kr/kg
Ufsi, slægður 14.2.25 276,38 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 30.1.25 16,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Gullkarfi 14.2.25 435,51 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

14.2.25 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 1.331 kg
Þorskur 592 kg
Ýsa 24 kg
Keila 20 kg
Samtals 1.967 kg
14.2.25 Eskey ÓF 80 Línutrekt
Þorskur 12.630 kg
Ýsa 826 kg
Langa 144 kg
Steinbítur 112 kg
Ufsi 25 kg
Karfi 15 kg
Keila 15 kg
Samtals 13.767 kg
14.2.25 Jóhanna ÁR 206 Plógur
Sæbjúga Au G 5.897 kg
Samtals 5.897 kg

Skoða allar landanir »